Hoppa yfir valmynd
24. maí 2000 Forsætisráðuneytið

Skýrsla úrskurðarnefndar um upplýsingamál fyrir árið 1999

Skýrsla úrskurðarnefndar um upplýsingamál fyrir árið 1999

Úrskurðarnefnd um upplýsingamál

starfar samkvæmt V. kafla upplýsingalaga nr. 50/1996 við að leysa úr ágreiningsmálum um aðgang að upplýsingum hjá stjórnvöldum á kærustigi. Nefndinni er skipað til hliðar við hið almenna stjórnkerfi ríkis og sveitarfélaga og er þannig sjálfstæð og óháð öðrum stjórnvöldum í störfum sínum. Úrskurðir nefndarinnar eru endanlegir og verður því ekki skotið annað innan stjórnsýslunnar. Af því leiðir að úrskurðir nefndarinnar hafa fordæmisgildi fyrir önnur stjórnvöld, en það stuðlar jafnframt að auknu samræmi í framkvæmd laganna. Af þeim sökum er í 19. gr. upplýsingalaga mælt svo fyrir að úrskurðir nefndarinnar skuli gefnir út árlega.

Í samræmi við síðastgreint ákvæði hefur forsætisráðuneytið gefið út skýrslu úrskurðarnefndar um upplýsingamál fyrir árið 1999. Skýrslan geymir endurrit allra úrskurða nefndarinnar frá síðasta ári, 20 talsins. Til að auðvelda notkun skýrslunnar er í efnisyfirliti og á undan hverju máli að finna yfirlit um þau atriði sem á hefur reynt hverju sinni. Auk þess er í atriðisorðaskrá vísað til viðeigandi úrskurða í þessari og fyrri ársskýrslum nefndarinnar. Þá er birt töluleg samantekt og samanburður á fjölda mála hjá nefndinni á fyrstu þremur starfsárum hennar og úrslit kæruatriða í úrskurðum hennar.

Í Reykjavík, 24. maí 2000.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum