Hoppa yfir valmynd
14. apríl 2000 Forsætisráðuneytið

Námsval kynja

Átak til að jafna námsval kynja og auka hlut kvenna í forystustörfum

Í tilefni undirskriftar og kynningar á samstarfssamningi um átak til að jafna námsval kynja og auka hlut kvenna í forystustörfum boðar forsætisráðherra til blaðamannafundar í Ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu kl. 11.30 í dag, föstudaginn 14. apríl. Samstarfsaðilar forsætisráðuneytisins við gerð samningsins eru félagsmálaráðuneytið, iðnaðar- og viðskiptaráðuneyti, menntamálaráðuneytið, Háskóli Íslands, Jafnréttisráð, Eimskipafélag Íslands hf., Gallup-Ráðgarður ehf., Orkuveita Reykjavíkur og Félag íslenskra framhaldsskóla.

Reykjavík, 14. apríl 2000

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum