Hoppa yfir valmynd
4. nóvember 2014 Forsætisráðuneytið

Ríkisstjórnin samþykkir að veittar verði allt að 687 m. kr. til lykilstofnana vegna eldsumbrota

Bárðarbunga
Bárðarbunga

Á fundi ríkisstjórnarinnar í dag voru rædd viðbrögð og aðgerðir vegna eldgossins og jarðhræringanna norðan Vatnajökuls og ríkisstjórnin samþykkti að veittar yrðu 329 milljónir til lykilstofnana vegna áfallins kostnaðar í ágúst og september auk þess sem teknar yrðu frá 358 milljónir króna til áramóta ef ástand á gossvæðinu helst óbreytt út þann tíma, eða samtals 687 milljónir króna samanber eftirfarandi:

  • Almannavarnardeild Ríkislögreglustjóra - 126 m.kr. sem viðbótarfjárheimildir til að standa straum af ýmsum óhjákvæmilegum viðbótarkostnaði vegna eldgossins og jarðhræringanna, þar með talið kostnað Slysavarnarfélagsins Landsbjargar og lögregluembætta við gæslu á svæðinu.
  • Jarðvísindastofnun Háskóla Íslands – 61 m.kr. til að bregðast við ýmsum óhjákvæmilegum viðbótarkostnaði, þar með talið verulega auknum kostnaði við starfsmannahald og ferðalög.
  • Landhelgisgæslan – 36 m.kr. til að standa straum af óhjákvæmilegum viðbótarkostnaði að mestu vegna viðbótareftirlits með flugi umfram það sem fjárheimildir ársins gera ráð fyrir að hægt sé að sinna.
  • Umhverfisstofnun – 12 m.kr. til að standa straum af óhjákvæmilegum viðbótarkostnaði, þar með talið nauðsynlegum tækjakaupum vegna loftgæðamælinga.
  • Vatnajökulsþjóðgarður – 12 m.kr. til að standa straum af óhjákvæmilegum viðbótarkostnaði sem tengist að mestu vöktun og þátttöku í mælingum vísindamanna.
  • Veðurstofa Íslands – 59 m.kr. til að standa straum af óhjákvæmilegum viðbótarkostnaði sem tengist verulega aukinnar vinnu og viðveru starfsmanna bæði við vöktun mæla en einnig viðveru á gosslóðum. Þá hefur reynst nauðsynlegt að endurnýja  tæki til að geta uppfyllt kröfur almannavarna.
  • Vegagerðin – 24 m.kr. til að standa straum af óhjákvæmilegum viðbótarkostnaði sem tengist annars vegar verkefnum varðandi lokanir að ósk Almannavarna og hins vegar vegna varnarvirkja við brýr til að draga úr líkum á tjóni við aukna vatnavexti.

Til viðbótar við framangreindan kostnað hefur verið lagt mat á kostnað við áframhaldandi aðgerðir út árið ef óbreytt ástand verður á svæðinu. Heildaráætlun fyrir þessa þrjá mánuði hljóðar upp á rúmar 358 m.kr.

Inn í framangreindum fjárframlögum er gert ráð fyrir m.a. að fjölga nettengdum mælitækjum um landið sem vakta styrk og gildi brennisteinsdíoxíðs SO2 sem og handmælitækjum. Vöktun á gossvæðinu yfir vetramánuðina hefur verið skipulögð. Að auki hefur verið lagt til að hefja einnig mælingar á styrk brennisteinssýru SO4. Þá er samþykkt erindi frá embætti Landlæknis um að í gang fari eftirlit vegna áhrifa gasmengunar frá gosstöðvunum á heilsufar almennings, en að verkefninu mun Landlæknisembættið vinna á næsta sex mánaða tímabili.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum