Ríkisstjórnin leggur 13 milljónir af ráðstöfunarfé sínu í úttekt á skattkerfinu
Ríkisstjórnin ákvað á fundi sínum í morgun, að
tillögu forsætisráðherra og fjármála- og efnahagsráðherra, að leggja 13
milljónir króna af ráðstöfunarfé sínu í úttekt á skattkerfinu sem
Samráðsvettvangur um aukna hagsæld stendur nú að.
Samráðsvettvangi um aukna hagsæld var komið á fót í
ársbyrjun 2013 til að stuðla að heildstæðri og málefnalegri umræðu um leiðir til
að tryggja hagsæld Íslendinga til lengri tíma litið. Í vettvangnum sitja
formenn allra stjórnmálaflokka sem eiga sæti á Alþingi, helstu hagsmunasamtök
launþega og atvinnurekenda, fulltrúar háskólasamfélagsins, sveitarfélaga og
stjórnendur fyrirtækja úr ýmsum atvinnugreinum. Vorið 2013 voru kynntar
ítarlegar tillögur verkefnisstjórnar Samráðsvettvangsins á sviði almennrar
hagstjórnar, innlenda þjónustugeirans, hins opinbera, auðlindageirans og
alþjóðageirans. Meirihluti þessara tillagna eru í vinnslu eða langt komnar í
stjórnkerfinu eða annars staðar í hagkerfinu.
Á fundi sínum þann 13. janúar sl. samþykkti
Samráðsvettvangurinn að hefja vinnu við úttekt á skattkerfinu. Við slíka úttekt
væru sömu viðmið höfð að leiðarljósi og í vinnu verkefnisstjórnar frá árinu
2013. Hugsað væri til lengri tíma, fyrirliggjandi efni nýtt, sameiginlegar
áherslur fundnar og breið sjónarmið tryggð í allri vinnu. Gert er ráð fyrir að
tillögur hópsins verði tilbúnar í lok maí næstkomandi.
Sigurður Ingi Jóhannsson, forsætisráðherra, leggur
áherslu á mikilvægi samráðsvettvangsins: „Samráðsvettvangur
um aukna hagsæld er þverpólítískt samtal stjórnmálanna, viðskiptalífsins, aðila
vinnumarkaðarins og háskólasamfélagsins. Þetta starf hefur þegar borið árangur eins og sést á því að fjölmargar tillögur
verkefnisstjórnar Samráðsvettvangsins hafa orðið að veruleika.
Mikilvægt er að halda þessu góða starfi áfram með nýjum verkefnum og
áskorunum."