Hoppa yfir valmynd
3. maí 2016 Forsætisráðuneytið

Ríkisstjórnin samþykkir siðareglur ráðherra

Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í morgun siðareglur ráðherra í samræmi við lög um Stjórnarráð Íslands. Siðareglurnar byggjast á siðareglum sem settar voru árið 2011. Þó hafa verið gerðar á þeim ákveðnar lagfæringar í samræmi við núgildandi lög um Stjórnarráð Íslands, auk orðalagsbreytinga með hliðsjón af nýjum siðareglum þingmanna, einkum er varðar hagsmunaárekstra.

„Ég fagna því að ríkisstjórnin hefur nú sett ráðherrum siðareglur með formlegum hætti,“ sagði Sigurður Ingi Jóhannsson forsætisráðherra að loknum fundi ríkisstjórnar. Að sögn forsætisráðherra þótti ekki ástæða til að endurskoða siðareglurnar frá árinu 2011 frá grunni heldur eru einungis gerðar nauðsynlegar lagfæringar í ljósi lagabreytinga og nýrra siðareglna fyrir alþingismenn.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum