Hoppa yfir valmynd
4. apríl 2017 Forsætisráðuneytið

Nýr aðstoðarmaður forsætisráðherra tekur til starfa í dag

Páll Ásgeir Guðmundsson - mynd
Bjarni Benediktsson, forsætisráðherra, hefur ráðið Pál Ásgeir Guðmundsson sem aðstoðarmann sinn.

Páll Ásgeir er stúdent frá Verzlunarskóla Íslands og með B.A. próf í sálfræði frá Háskóla Íslands. Á árunum 1999-2001 starfaði Páll við markaðsmál þar til hann var ráðinn framkvæmdastjóri Telmar á Íslandi en því starfi gegndi hann þar til félagið var sameinað Gallup 2003. Undanfarin 14 ár hefur Páll starfað hjá Gallup en síðustu sjö ár hefur hann gegnt starfi sviðsstjóra markaðs- og viðhorfsrannsókna. Páll hefur unnið með mörgum af stærstu fyrirtækjum landsins auk þess að leiða rannsóknir á viðhorfum landsmanna til ýmissa málefna. Páll Ásgeir er fæddur í Reykjavík 1973, eiginkona Páls er Elsa Nielsen, grafískur hönnuður, og eiga þau þrjú börn.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum