Hoppa yfir valmynd
21. maí 2001 Forsætisráðuneytið

Þjóðhátíðargjöf Norðmanna


Þjóðhátíðargjöf Norðmanna 2001

Úthlutað hefur verið styrkjum þessa árs úr sjóðnum Þjóðhátíðargjöf Norðmanna. Norska Stórþingið samþykkti í tilefni ellefu alda afmælis Íslandsbyggðar 1974 að færa Íslendingum eina milljón norskra króna að gjöf í ferðasjóð. Samkvæmt skipulagsskrá sjóðsins skal ráðstöfunarfénu, vaxtatekjum af höfuðstól, varið til að styrkja hópferðir Íslendinga til Noregs.

Styrkir voru fyrst veittir úr sjóðnum 1976 og fór nú fram tuttugasta og fjórða úthlutun. Ráðstöfunarfé sjóðsins var að þessu sinni kr. 634.803,-. Styrkumsóknir voru 15, en samþykkt var að styrkja eftirtalda aðila:

Kristilegu skólahreyfinguna, meðferðarheimilið Árbót, kennara við Grenivíkur-, Valsár- Stjórutjarnar- og Þelamerkurskóla, Stígamót og nemendur í búvísindadeild III við Landbúnaðarháskólann á Hvanneyri.


Í Reykjavík, 17. maí 2001


Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum