Hoppa yfir valmynd
13. júlí 2001 Forsætisráðuneytið

Kristnihátíðarsjóður tekur til starfa

Frétt nr 22/2001


Kristnihátíðarsjóður, sem starfar samkvæmt lögum um sjóðinn sem samþykkt voru á Alþingi 28. febrúar 2001, var stofnaður til að minnast þess að 1000 ár eru liðin frá því kristinn siður var lögtekinn á Íslandi. Hlutverk sjóðsins er tvíþætt:

  • - að efla fræðslu og rannsóknir á menningar- og trúararfi þjóðarinnar og stuðla að umræðum um lífsgildi hennar, siðferði og framtíðarsýn;
  • - að kosta fornleifarannsóknir á helstu sögustöðum þjóðarinnar, m.a. á Þingvöllum, í Skálholti og á Hólum.

Starfstími sjóðsins er fimm ár eða til ársloka 2005. Ríkissjóður leggur sjóðnum til 100 millj. kr. fyrir hvert starfsár samkvæmt sérstökum lið á fjárlögum. Samkvæmt lögum um Kristnihátíðarsjóð, skal stjórn sjóðsins eiga samvinnu við menntamálaráðuneytið, kirkjumálaráðuneytið, þjóðkirkjuna og önnur trúfélög, Þjóðminjasafnið og háskólana í Reykjavík og á Akureyri, svo og frjáls félagasamtök, um viðfangsefni sjóðsins.

Stjórn sjóðsins, kjörin af Alþingi, skipa Anna Soffía Hauksdóttir, sem jafnframt er formaður, Anna Agnarsdóttir og Þorsteinn Gunnarsson, rektor. Varamenn stjórnar eru Þorsteinn Gunnarsson, arkitekt, Jón Páll Halldórsson og Þóra Guðmundsdóttir.

Stjórnin hefur skipað tvær verkefnisstjórnar sem gera munu tillögur til stjórnar um verkefni og framlög til þeirra fyrir hvert starfsár, auk þess að vera stjórninni til ráðgjafar. Í verkefnisstjórn á sviði menningar- og trúararfs, sem hafa mun aðsetur á Akureyri, sitja Guðmundur Heiðar Frímannsson, formaður, Guðmundur K. Magnússon og Lára Oddsdóttir. Verkefnisstjórn á sviði fornleifafræði, með aðsetur í Reykjavík, skipa Guðmundur Hálfdanarson, formaður, Árný E. Sveinbjörnsdóttir og Hjalti Hugason.

Fyrirhugað er að auglýsa eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum í ágústmánuði nk. með umsóknarfresti til 1. október og er stefnt að fyrstu úthlutun þann 1. desember 2001.

                                                                                                    Reykjavík 13. júlí 2001

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum