Áætlun um efnahagsstöðugleika
Áætlunin sem hér er lögð fram er unnin af ríkisstjórn í samvinnu við Seðlabanka Íslands, hagsmunaaðila og innlenda og erlenda sérfræðinga, m.a. frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum, IMF. Að mati allra sem að gerð þessarar áætlunar komu er þessi leið líklegust til að skila efnahagslífinu út úr alvarlegri gjaldeyriskreppu og samdrætti vegna hruns bankakerfisins. Ríkisstjórnin er sannfærð um að með samstilltu átaki muni þjóðin geta unnið bug á þeim vanda sem við blasir á fremur skömmum tíma.
Fyrstu skrefin verða stigin um leið og áætlunin hefur hlotið samþykki Alþingis og stjórnar IMF og þá strax verður hafist handa við margvíslegar aðgerðir eins og nánar er útskýrt í áætluninni sjálfri. Áfram verður unnið með erlendum sérfræðingum og endurskoðunarfyrirtækjum auk þess sem mikill fjöldi innlendra fag- og hagsmunaðila kemur með beinum eða óbeinum hætti að verkefninu.
Áætlunin sjálf og samþykki stjórnar Alþjóðagjaldeyrisjóðsins er jafnframt lykillinn að fjárhagslegu liðsinni annarra þjóða, enda er sjóðurinn sá aðili sem mestrar alþjóðlegrar viðurkenningar nýtur sem ráðgjafi við lausn mála eins og þeirra sem Íslendingar nú glíma við.
Samkvæmt áætluninni munu þeir erlendu sérfræðinga, sem starfa með íslenskum stjórnvöldum við endurskipulagningu bankakerfisins, leggja mat á það hvort og þá hvernig stjórnendur eða helstu eigendur íslensku bankanna hafa misfarið með vald sitt í bönkunum. Erlendur eftirlitssérfræðingur mun einnig stýra rannsókn á lagaumhverfi fjármálakerfisins, skoða hvernig eftirliti hér hefur verið sinnt og leggja til úrbætur sem tryggja að samskonar áfall og nú hefur dunið yfir geti ekki endurtekið sig.
Verkefnið framundan krefst stefnufestu, fórna og aukinna byrða. Markmiðið er hins vegar skýrt: Að koma þjóðinni eins fljótt og hægt er upp úr þeirri gjaldeyriskreppu og því samdráttarskeiði sem nú fer í hönd, þannig að hægt sé að hefja uppbyggingarstarf samfara minnkandi verðbólgu, lækkun vaxta og endurgreiðslu opinberra lána.
- Viljayfirlýsingin í heild sinni á ensku (pdf-skjal 1,11 MB, opnast í nýjum glugga)
- Viljayfirlýsingin í heild sinni á íslensku (pdf-skjal á vef Alþingis, opnast í nýjum glugga)
- Umfjöllun Alþingis - Fjárhagsleg fyrirgreiðsla hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum, 161. mál, þingsályktunartillaga
- Upplýsingar á vef Alþjóðagjaldeyrissjóðsins um lánaumsókn Íslands
- Skýrsla Alþjóðagjaldeyrissjóðsins um efnahagsvanda Íslands - á ensku
- Skýrsla Alþjóðagjaldeyrissjóðsins um efnahagsvanda Íslands - íslensk þýðing

