Eru einhver ítarlegri skilyrði sett í óbirtum gögnum?
Nei, enda er það grundvallaratriði af hálfu bæði IMF og stjórnvalda að áætlunin öll, ásamt fylgigögnum og skýringum, liggi fyrir opinberlega um leið og frá henni hefur verið gengið af hálfu stjórnar sjóðsins. Af hálfu ríkisstjórnar er birting allra gagna mikilvægur liður í að skapa sátt og samstöðu um þær aðgerðir sem grípa þarf til að komast út úr alvarlegri gjaldeyris- og fjármálakreppu og hefja uppbyggingarstarf í atvinnulífinu. Af hálfu IMF hefur farið fram vinna við að auka gagnsæi ákvarðanatöku eins og kostur er og birting allra gagna og fylgiskjala með áætlununum er liður í því. Vegna þessa lýkur viljayfirlýsingu ríkisstjórnar og Seðlabanka Íslands á lið sem heimilar IMF að birta opinberlega áætlunina, fylgigögn hennar og skýrslu sérfræðinga sjóðsins.
