Hoppa yfir valmynd
12. júní 2014 Matvælaráðuneytið

Niðurstöður um úthlutun á EFTA tollkvóta

Þriðjudaginn 3. júní 2014 rann út umsóknarfrestur um tollkvóta vegna innflutnings á nautakjöti úr vörulið ex0210.xxxx og ostum úr vörulið 0406.xxxx fyrir tímabilið júlí 2014 – júní 2015.

Samtals bárust umsóknir frá sex aðilum um tollkvótann. Til útboðs kom á tollkvótum á báðum vöruliðum þar sem umsótt magn var meira en það magn sem í boði var.

Samtals bárust  þrjú gild tilboð í tollkvótann.

Þrjú tilboð bárust um innflutning á nautakjöti, samtals 23.000 kg á meðalverðinu 5 kr./kg.  Hæsta boð var 10 kr./kg en lægsta boð var 0 kr./kg. Tilboðum var tekið frá einu fyrirtæki um innflutning á 10.000 kg á meðalverðinu 10 kr./kg.

Þrjú tilboð bárust í tollkvóta vegna innflutnings á ostum, samtals 14.500 kg á meðalverðinu 46 kr./kg.  Hæsta boð var 150 kr./kg en lægsta boð var 5 kr./kg.  Tilboðum var tekið frá á þremur fyrirtækjum um innflutning á 14.500 kg á meðalverðinu 46 kr./kg.

Að tillögu ráðgjafanefndar um inn- og útflutning landbúnaðarvara hefur atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið úthlutað tollkvótum til eftirtalinna fyrirtækja á grundvelli tilboða og/eða umsókna þeirra:


Nautakjöt fyrir tímabilið júlí 2014 – júní 2015

Magn (kg) Tilboðsgjafi
  10.000 Aðföng hf


Ostur fyrir tímabilið júlí 2014 – júní 2015

Magn (kg) Tilboðsgjafi
    5.000 Aðföng hf
    5.000 Innnes ehf
    4.500 Íslenskar matvörur ehf

 

Reykjavík, 11. júní 2014.


Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum