Hoppa yfir valmynd
21. febrúar 2024 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Frumvarp til laga um skák í samráð

Mennta- og barnamálaráðuneytið kynnir til samráðs í Samráðgátt stjórnvalda drög að frumvarpi til laga um skák. Frumvarpið felur í sér nýtt fyrirkomulag um styrki til stórmeistara í skák þar sem horft verður til einstakra verkefna og framgangs. Markmiðið er einnig að styrkja afreksskákfólk og efnilegt skákfólk sem stefnir að alþjóðlegum árangri.

Framlög ríkisins til skákar munu samkvæmt frumvarpinu renna annars vegar í afrekssjóð í skák og hins vegar til skákhreyfingarinnar fyrir skákþjálfun og fræðslu með eflingu skákiðkunar hér á landi fyrir augum. Afrekssjóðurinn er á ábyrgð mennta- og barnamálaráðherra og starfar undir stjórn sem annast úthlutun fjármagns.

Undanfarna áratugi hefur styrkjum til afreksskákfólks verið háttað með öðrum hætti en það sem ríkir um afreksstarf í öðrum greinum. Styrkurinn hefur eingöngu runnið til stórmeistara í formi fastra launa frá ríkinu. Með frumvarpi þessu er ætlunin að styðja áfram við skák með auknum hvata til árangurs meðal efnilegs upprennandi skákfólks sem og stórmeistara með auknu jafnræði og samræmingu í afreksstarfi að leiðarljósi.

Með frumvarpinu verða störf og laun stórmeistara í skák á grundvelli laga um launasjóð stórmeistara lögð niður. Lagt er til að stórmeistarar nú á launum njóti forgangs til styrkja úr afrekssjóði í skák í fyrstu úthlutun árið 2025 en frá og með 2026 verði umsóknir þeirra metnar á sama hátt og aðrar umsóknir.

Ár hvert verður auglýst eftir umsóknum um styrki úr afrekssjóði í skák í samræmi við þriggja ára stefnu og áherslur úthlutunar. Styrkjum er úthlutað einu sinni á ári til skilgreindra verkefna og taka mið af væntum árangri umsækjanda það árið.

Styrkveiting úr afrekssjóði í skák er útfærð nánar í drögum að reglugerð um afrekssjóð í skák sem kynnt eru til samráðs með frumvarpinu.

Ný heildarlög um skák koma í stað laga um launasjóð stórmeistara í skák og laga um Skákskóla Íslands. Mennta- og barnamálaráðuneytið kallar eftir umsögnum í Samráðsgátt stjórnvalda frá öllum sem láta málið sig varða.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum