Hoppa yfir valmynd
26. febrúar 2024 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Samtal um stefnu í málefnum innflytjenda: Opinn fundur í Reykjavík

Fundir hafa verið haldnir vítt og breitt um landið og sá næsti er í Reykjavík nú á miðvikudaginn. Innflytjendur eru sérstaklega hvattir til að mæta og segja sína skoðun.  - mynd

English below / Język polski poniżejVinna við stefnu og framtíðarsýn í málefnum innflytjenda er í fullum gangi og næsti samráðsfundur fer fram í Reykjavík á miðvikudaginn. Innflytjendur eru sérstaklega hvattir til að mæta. Hægt er að taka þátt í samráðsfundunum á íslensku, ensku og pólsku

Í nóvember fóru vel heppnaðir fundir fram á Akureyri og Ísafirði. Í janúar var fundað bæði á Selfossi og í Borgarnesi og í síðustu viku í Reykjanesbæ

Samtalið heldur nú áfram á höfuðborgarsvæðinu:

Reykjavík 28. febrúar

  • 28. febrúar kl. 17:00, Hotel Reykjavik Grand (Grand hótel)
  • 28 February at 17:00 / 28 lutego o godz. 17:00, Hotel Reykjavik Grand (Sigtún 28, 105 Reykjavík)
    Facebook-viðburður / Facebook-event

Lokafundurinn fer síðan fram á Egilsstöðum þann 11. mars nk.

Markmiðið með stefnunni og framtíðarsýninni er að fólk sem sest að hér á landi hafi tækifæri til inngildingar (e. inclusion) og virkrar þátttöku í samfélaginu og á vinnumarkaði. Samtal og samráð við íbúa, sérstaklega innflytjendur, er mikilvægt í þessari vinnu, og býður félags- og vinnumarkaðsráðuneytið því til samtals hringinn í kringum landið.

Fyrsta grænbókin á þremur tungumálum

Í nóvember síðastliðnum var birt stöðumat í málaflokknum, svokölluð grænbók. Þetta var fyrsta grænbókin í málaflokknum og jafnframt fyrsta grænbókin sem birt er á þremur tungumálum: Íslensku, ensku og pólskuÍ grænbókinni er mat lagt á stöðuna í málefnum innflytjenda og flóttafólks hér á landi auk þess sem áskoranir og tækifæri eru greind til framtíðar.

Í framhaldinu verður unnin hvítbók sem mun fela í sér fyrstu drög að stefnu í málefnum innflytjenda og flóttafólks og eru samráðsfundirnir hluti af þeirri vinnu. Í kjölfarið verður unnin tillaga til þingsályktunar um stefnu í málefnum innflytjenda og flóttafólks

Auk opinna samráðsfunda hafa lokaðir rýnihópar með innflytjendum og flóttafólki fundað hér og þar um landið.

English – Your views matter! 

Would you like to participate in the shaping of Iceland’s first policy on the matters of immigrants and refugees? The Ministry of Social Affairs and Labour is currently working on a future vision and invites you to open consultation meetings around the country to hear your views on the most important integration issues affecting you.  

The policy aims for better inclusion of immigrants and to increase opportunities to actively participate in society and the labour market. Immigrants are especially encouraged to join the meeting. 

The next meeting will take place in Reykjavik, on 28 February at 17:00, Hotel Reykjavik Grand (Sigtún 28, 105 Reykjavík) see Facebook-event. Immigrants are especially encouraged to join. You can participate in the meeting in Icelandic, English and Polish. Everyone welcome!

A status assessment (green paper) which includes suggested key issues for the forthcoming policy on the matters of immigrants and refugees has been published and translated into English.  

Polski – Twoja opinia ma znaczenie 

Czy chcesz uczestniczyć w kształtowaniu pierwszej polityki Islandii w sprawach imigrantów i uchodźców? Ministerstwo Pracy i Polityki Społecznej pracuje obecnie nad jej przyszłą wersją i zaprasza Cię na otwarte spotkania konsultacyjne odbywające się w całym kraju.  

Polityka ma na celu zapewnienie imigrantom możliwości lepszej integracji (włączenia, ang. inclusion) oraz aktywnego uczestnictwa w społeczeństwie.

Do wzięcia udziału w spotkaniu szczególnie zachęcamy więc imigrantów: 28 lutego o godz. 17:00, Hotel Reykjavik Grand (Sigtún 28, 105 Reykjavík), Facebook. W spotkaniu będzie można uczestniczyć w języku islandzkim, angielskim oraz polskim. Serdecznie zapraszamy wszystkich do wzięcia udziału! 

Na stronie internetowej Ministerstwa Pracy i Polityki Społecznej została opublikowana ocena stanu obecnego sytuacji imigrantów (tzw. zielona księga), która zawiera sugestie kluczowych zagadnień dla przyszłej polityki w sprawach imigrantów i uchodźców. 

Frá fundi í Reykjanesbæ vegna stefnumótunar í málefnum innflytjenda.
  Frá fundinum í Reykjanesbæ í síðustu viku.

Á Akureyri í nóvember.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum