Hoppa yfir valmynd
9. mars 2024 Dómsmálaráðuneytið

Tveir sóttu um embætti héraðsdómara

Hinn 16. febrúar 2024 auglýsti dómsmálaráðuneytið í Lögbirtingablaði lausa til umsóknar setningu í embætti héraðsdómara með fyrsta starfsvettvang við Héraðsdóm Reykjavíkur. Sett verður í embættið hið fyrsta eftir að dómnefnd um hæfni umsækjenda um embætti dómara lýkur störfum og er miðað við að setningin vari til 28. febrúar 2029. Umsækjendur um embættið eru eftirtaldir:

Sindri M. Stephensen dósent,
Sólveig Ingadóttir aðstoðarmaður héraðsdómara.


Umsóknir hafa verið afhentar dómnefnd um hæfni umsækjenda um embætti dómara til meðferðar.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum