Hoppa yfir valmynd
22. mars 2024 Dómsmálaráðuneytið

Fjórar umsóknir um embætti dómara við Hæstarétt Íslands

Hinn 1. mars 2024 auglýsti dómsmálaráðuneytið í Lögbirtingarblaði laust til umsóknar embætti dómara við Hæstarétt Íslands. Skipað verður í embættið frá og með 1. ágúst 2024. Umsóknarfrestur rann út 18. mars síðastliðinn og eru umsækjendur eftirtaldir:

Aðalsteinn E. Jónasson dómari við Landsrétt,

Eyvindur G. Gunnarsson prófessor við lagadeild Háskóla Íslands,

Ingibjörg Þorsteinsdóttir dómstjóri Héraðsdóms Reykjavíkur,

Skúli Magnússon umboðsmaður Alþingis.

Umsóknir hafa verið afhentar dómnefnd um hæfni umsækjenda um embætti dómara til meðferðar.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum