Hoppa yfir valmynd
10. maí 2024 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Þrjú verkefni hlutu nýsköpunarverðlaun hins opinbera – nýsköpunardagur haldinn í næstu viku

Fulltrúar verkefnanna sem hlutu verðlaun við afhendingu þeirra á Bessastöðum. - mynd

Nýsköpunardagur hins opinbera verður haldinn 15. maí næstkomandi á Hilton Reykjavík Nordica, en í aðdraganda hans voru nýsköpunarverðlaun hins opinbera fyrir árið 2024 veitt.

Þrjú verkefni hlutu verðlaun í ár, en þau eru veitt fyrir framúrskarandi árangur á sviði nýsköpunar í opinberri starfsemi. Alls bárust vel á fjórða tug tilnefninga en dómnefnd var skipuð fulltrúum Sambands íslenskra sveitarfélaga og fjármála- og efnahagsráðuneytisins.

Eftirfarandi verkefni fengu verðlaun:

Sýslumenn

Sýslumenn hlutu viðurkenningu fyrir brautryðjendastarf við sjálfvirknivæðingu opinberrar þjónustu, og sérstaklega stafræna málsmeðferð dánarbúa. Alls voru 92% útgefinna dánarvottorða í lok árs 2023 stafræn, en voru 26% í byrjun sama árs. Sýslumenn fá helstu lykilupplýsingar á borð við skattframtöl og ökutækjaeignir sjálfkrafa í ferlinu, aðstandendur geta fyllt allar yfirlýsingar og umsóknir út stafrænt, sem hefur gert umsóknarferlið einfaldara og fljótlegra.

Reykjavíkurborg og Vestmannaeyjabær

Reykjavíkurborg og Vestmannaeyjabær hlutu sameiginlega viðurkenningu fyrir verkefni varðandi útboð og innleiðingu á velferðartæknilausn sem hefur gert heilbrigðis- og félagsþjónustuveitendum á velferðarsviði sveitarfélaganna kleift að stórefla upplýsingamiðlun sín á milli og hámarka skilvirkni við veitingu fjölbreyttrar þjónustu í heimahúsum. Þjónustunotendur hafa einnig öðlast betri yfirsýn á skipulagi sinnar þjónustu.

Árborg

Þá fékk sveitarfélagið Árborg sérstaka viðurkenningu fyrir framfaradrifinn metnað á sviði umbóta og stafrænnar þjónustu sveitarfélagsins. Í erfiðu árferði hefur Árborg lyft grettistaki í stafrænni umbreytingu með fjölbreyttum stafrænum umbótaverkefnum sem hafa skilað bættri yfirsýn stjórnenda á verkefnin og dregið úr álagi starfseminnar.

Nýsköpunardagurinn er framundan

Á nýsköpunardegi hins opinbera 15. maí verður fjöldi erinda með sérstaka áherslu á gervigreind og hvernig hún getur hjálpað við að leysa ýmsar áskoranir í rekstri og þjónustu.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum