Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra og Angela Merkel, kanslari Þýskalands hittust á loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Kaupmannahöfn í dag. Þær ræddu m.a. um umsókn Íslands um aðild að ESB, stöðu efnahagsmála í ríkjunum tveimur og möguleika á fundi þeirra á næsta ári.
Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) hefur nú tilkynnt um bráðabirgðaniðurstöðu vegna sjö annarra kvartana erlendra fjármálastofnana sem eru almennir kröfuhafar gagnvart einhverjum af gömlu bönkunum, vegna laganna og aðgerða íslenskra yfirvalda í tengslum við þau. Bráðabirgðaniðurstaða ESA er í öllum tilvikum á sama veg og í niðurstöðunni frá 4. desember, þ.e. fallist er á sjónarmið Íslands í málunum, forgangur sem innstæðum var veittur fær staðist að mati ESA og íslensk stjórnvöld höfðu að mati stofnunarinnar rétt til að verja bankakerfið og almannaöryggi.
Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) tilkynnti með bréfi dags. 4. desember sl. að stofnunin hefði komist að bráðabirgðaniðurstöðu vegna kvörtunar hóps kröfuhafa á hendur gömlu bönkunum, SPRON og Sparisjóðabanka Íslands vegna aðgerða íslenskra yfirvalda í tengslum við setningu neyðarlaganna nr. 125/2008.
Skrifað var undir samning í dag milli ráðuneyta og sveitarfélaga um að á þessu ári verði áttatíu milljónir króna veittar af fjárlögum til sveitarfélaga til að auka þjónustu við langveik börn og börn með ofvirkni eða athyglisbrest.
Lesa meiraForsætisráðherra hefur skipað nefnd sem fær það verkefni að endurskoða lög um Stjórnarráð Íslands í heild sinni og gera tillögur um lagabreytingar.
Lesa meiraLokið er úthlutun styrkja úr Þjóðhátíðarsjóði 2009 vegna ársins 2010 og þar með þrítugustu og þriðju úthlutun úr sjóðnum.
Lesa meiraJóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra sagði í ávarpi á 20 ára afmæli UNIFEM á Íslandi í dag að þrátt fyrir yfirvofandi niðurskurð yrði starfsemi neyðarmóttöku nauðgana á Landspítala varin.
Lesa meiraJóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra mælti í gær fyrir frumvarpi til laga um stjórnlagaþing sem lagt er fram í samræmi við samstarfsyfirlýsingu ríkisstjórnar Samfylkingarinnar og Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs.
Lesa meiraJóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra mælti í dag fyrir frumvarpi til laga um þjóðaratkvæðagreiðslur. Frumvarpið er lagt fram í samræmi við samstarfsyfirlýsingu ríkisstjórnar Samfylkingarinnar og Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs.
Lesa meiraRíkisstjórnin ákvað á fundi sínum í dag að veita 7 milljónum króna til Þjóðfundar sem haldinn verður laugardaginn 14. nóvember næstkomandi.
Lesa meira
Fyrsti fundur nýskipaðrar ráðherranefndar um jafnrétti kynja var haldinn í dag, föstudaginn 6. nóvember 2009. Í henni starfa forsætisráðherra, fjármálaráðherra, félags- og tryggingamálaráðherra og dómsmála- og mannréttindaráðherra.
Lesa meira
Ráðherranefnd um efnahagsmál hélt sinn fyrsta fund í dag og fjallaði um samstarfið við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn, framtíðarskipulag peningamála, samræmingu fjármála ríkis- og sveitarfélaga, uppbyggingu fjármálakerfisins, þróun efnahagsmála og stöðu Íslands á alþjóðavettvangi, en þetta verða fastir liðir á dagskrá hennar á næstunni.
Lesa meiraOpinber heimsókn Kaj Leo Holm Johannesens, lögmanns Færeyja, hefst eftir hádegi í dag og stendur fram á miðvikudag. Lögmaðurinn á fund með Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra síðdegis og verður af því tilefni efnt til blaðamannafundar í anddyri Stjórnarráðshússins kl. 17:30.
Lesa meiraÍ gær var birt Stöðuskýrsla Ísland 2009, sem forsætisráðuneytið fól Félagsvísindastofnun og Hagfræðistofnun Háskóla Íslands að taka saman í júní sl. Í skýrslunni er gefin mynd af þróun íslensk samfélags síðastliðin 20 ár.
Lesa meiraJóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra sagði í ræðu á fjármálaráðstefnu sveitarfélaga í morgun, að framundan væru miklar kerfisbreytingar á vettvangi sveitarstjórnarmála, fækkun sveitarfélaga með hugsanlegum atbeina Alþingis, ný svæðaskipting og verkefnatilflutningur frá ríki til sveitarfélaganna. Ráðherra taldi nauðsynlegt að fjármálareglur sveitarfélaga litu dagsins ljós og gerður yrði hagstjórnarsamningur milli ríkis og sveitarfélaga sem m.a. gerði ráð fyrir að mánaðarlega lægju fyrir hagtölur sveitarsjóða.
Ríkisstjórnin hefur ákveðið að ráðast í viðamiklar breytingar og endurskipulagningu á verkefnum ráðuneyta og stofnana. Markmið breytinganna eru, auk þess að nýta þá fjármuni sem til skiptanna eru á sem árangursríkastan hátt, að forgangsraða í ríkisrekstrinum með nýjum hætti, verja grunnþjónustu, auka skilvirkni í ríkisrekstri með stærri og hagkvæmari einingum, einfalda stjórnsýslu og þjónustu, endurskoða verkaskiptingu milli ríkis og sveitarfélaga og gera ríkiskerfið sveigjanlegra og tilbúið til að takast á við breytingar.
Lesa meiraIrene Mia, hagfræðingur og framkvæmdastjóri hjá Alþjóðaefnahagsráðinu (World Economic Forum) og einn skýrsluhöfunda The Global Competitiveness Report 2009-2010, fjallar um samkeppnishæfni Íslands á morgunfundi sem haldinn verður föstudaginn 25. september næstkomandi undir yfirskriftinni Endurreisn: Sóknarfæri og samkeppnishæfni. 20/20 Sóknaráætlun, sem er á vegum ríkisstjórnarinnar, Nýsköpunarmiðstöð Íslands og Háskóli Íslands standa að fundinum.
Lesa meiraFyrsti fundur nýs Vísinda- og tækniráðs var haldinn í dag þar sem fjallað var um drög að stefnu stjórnvalda í vísinda- og tæknimálum til ársins 2012. Þá var á fundinum samþykkt breytt vinnulag ráðsins sem gerir ráð fyrir fjölgun funda þess og virkari þátttöku ráðherra.
Lesa meiraFulltrúar íslenskra, breskra og hollenskra stjórnvalda hafa verið í sambandi undanfarnar vikur í kjölfar samþykktar l. nr. 93/2009 um ríkisábyrgð á lánum til Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.
Lesa meiraRíkisráð Íslands hefur verið kvatt saman á Bessastöðum föstudaginn 18. september n.k. kl. 11:00.
Lesa meiraRíkisstjórnin hefur ákveðið fyrstu viðbrögð við skýrslu vistheimilisnefndar um Heyrnleysingjaskólann, Kumbaravog og skólaheimilið Bjarg en forsætisráðherra kynnti hana á ríkisstjórnarfundi í morgun.
Lesa meira
Stjórnarráðshúsið var nú í fyrsta sinn opið á Menningarnótt og þúsundir fólks á öllum aldri litu þar inn og skoðuðu starfsaðstöðu forsætisráðherra og ríkisstjórnarinnar.
Lesa meiraÖnnur ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur hefur nú starfað í 100 daga og lokið langflestum þeirra verkefna sem hún einsetti sér að ljúka á þeim tíma. Aðeins standa eftir sex verkefni en flest þeirra verða afgreidd innan tíðar.
Lesa meiraNefndin var skipuð samkvæmt lögum nr. 26/2007 og var henni fyrst falið að kanna starfsemi vistheimiliisins Breiðavík á árunum 1950 - 1980. Með erindisbréfi forsætisráðherra frá 11. apríl 2008, var nefndinni falið að halda störfum sinum áfram og kanna mál fleiri vistheimila.
Lesa meiraSamningar hafa tekist um stöðugleikasáttmála sem er eitt af meginmarkmiðum ríkisstjórnarinnar við endurreisn efnahagslífsins.
Lesa meira
Forsætisráðherra hefur lagt fram á Alþingi frumvarp til breytinga á ýmsum lögum vegna tilfærslu verkefna innan Stjórnarráðs Íslands. Frumvarpið er lagt fram í samræmi við fyrirætlanir ríkisstjórnarinnar um að gera róttækar breytingar á skipulagi stjórnkerfisins á kjörtímabilinu.
Lesa meira
Forsætisráðherra lagði fram á ríkisstjórnarfundi 19. maí minnisblað um endurskoðun upplýsingalaga með það að markmiði að aðgengi almennings og fjölmiðla að upplýsingum stjórnarráðsins skuli bættur.
Lesa meiraForsætisráðherra hefur skipað nefnd sem hefur það hlutverk að endurskoða lög um fjármál stjórnmálaflokkana. Nefndin er skipuð fulltrúum allra stjórnmálaflokka sem eiga fulltrúa á Alþingi auk fulltrúa Frjálslynda flokksins og einum fulltrúa sem forsætisráðherra skipar án tilnefningar.
Lesa meira
Í samstarfsyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar er kveðið á um svohljóðandi verkefni um gerð sóknaráætlana: ?Ríkisstjórnin mun efna til viðtæks samráðs undir forystu forsætisráðuneytisins um sóknaráætlanir fyrir alla landshluta til eflingar atvinnulífs og lífsgæða til framtíðar.
Lesa meira
Forsætisáðherra sagði það vilja sinn að næsta ríkisstjórn sækti um aðild að Evrópusambandinu í ávarpi sínu á ársfundi Seðlabanka Íslands í dag, 17. apríl. Ráðherra boðaði jafnframt fækkun ráðuneyta sem koma að löggjöf um fjármálamarkað, endurskoðun peningastefnu og aukna samvinnu Seðlabankans og Fjármálaeftirlitsins.
Lesa meiraForsætisráðherra hefur í samræmi við samþykkt ríkisstjórnarinnar frá 17. mars skipað starfshóp sem ætlað er að semja drög að siðareglum fyrir ráðherra í ríkisstjórn Íslands.
Lesa meiraRíkisstjórn Íslands ákvað í nóvember 2008 að biðja reyndan bankaeftirlitsmann að leggja mat á lagaumhverfi og framkvæmd fjármálaeftirlits á Íslandi og gera tillögur um nauðsynlegar úrbætur, en matið er hluti af samkomulagi stjórnvalda og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS).
Lesa meiraForsætisráðherra hefur gefið út nýjar gjaldskrár á grundvelli upplýsingalaga nr. 50/1996 og stjórnsýslulaga nr. 37/1993.
Lesa meiraÚthlutað hefur verið styrkjum úr Grænlandssjóði fyrir árið 2009. Sjóðurinn er starfræktur í samræmi við lög nr. 102/1980 og veitir styrki til kynnisferða, námsdvalar, listsýninga, íþróttasýninga og annarra málefna á sviði lista, vísinda og tæknimála, er eflt geta samskipti Grænlendinga og Íslendinga.
Lesa meiraSendinefnd frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum, (AGS), undir forystu Marks Flanagan dvaldi á Íslandi 26. febrúar til 13. mars til að meta stöðu efnahagsáætlunar AGS og íslenskra stjórnvalda. Hún er hluti 2,1 milljarða dala fjárhagslegrar fyrirgreiðslu sjóðsins sem samþykkt var 19. nóvember sl.
Lesa meiraJóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra ávarpaði Viðskiptaþing Viðskiptaráðs Íslands í dag. Forsætisráðherra sagði meðal annars í ræðu sinni að stjórnvöld væru nú komin með miklu víðtækara hlutverk í efnahagslífinu en staðið hefði til og miklu stærra hlutverk en ríkissjóður ætti að hafa.
Lesa meiraRíkisstjórnin fjallaði í morgun um tillögur Stýrihóps ríkisstjórnarinnar um aðgerðir í atvinnumálum til þess að sporna gegn atvinnuleysi.
Lesa meiraForsætisráðherra hefur í dag skipað tvo fulltrúa í peningastefnunefnd samkvæmt nýju ákvæði í lögum nr. 36/2001, um Seðlabanka Íslands, með síðari breytingum.
Lesa meira
Ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur hefur þar með samþykkt að leggja 29 mál fyrir Alþingi, þar af 26 lagafrumvörp sem gera ráð fyrir breytingum á 42 lögum.
Lesa meiraAnders Fogh Rasmussen, Fredrik Reinfeldt, Jens Stoltenberg og Matti Vanhanen komu til landsins í morgun til að sitja norrænt hnattvæðingarþing ásamt á annað hundruð boðsgestum hvaðanæva að á Norðurlöndum.
Lesa meiraRíkisstjórn Íslands fjallaði á fundi sínum í dag einkanlega um tvennt, annars vegar fyrirhugað frumvarp til breytinga á stjórnskipunarlögum sem fellur undir fyrirheit stjórnarinnar um lýðræðislegar umbætur í landinu, og hins vegar um mál er varða hag einstaklinga sem tekið hafa erlend lán, svokölluð myntkörfulán.
Lesa meiraMarkar fjármálakreppan endalok eða upphaf framsækinnar loftslagsstefnu? Leitað verður svara við þessari spurningu og öðrum á hnattvæðingarþingi norrænu forsætisráðherranna sem haldið verður við Bláa lónið dagana 26. og 27. febrúar.
Lesa meiraRíkisstjórn Íslands afgreiddi á fyrsta fundi sínum 3. febrúar frumvarp forsætisráðherra um breytingar á lögum um Seðlabanka Íslands. Frumvarpið var kynnt þingflokkum stjórnarflokkanna og Framsóknarflokknum 4. febrúar og lagt fyrir Alþingi sama dag.
Lesa meira
Stjórn Grænlandssjóðs auglýsir eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum á árinu 2009.
Lesa meira