Forsætisráðherra afhendir forsætisráðherra Noregs þjóðargjöf til Norðmanna
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra afhenti nú síðdegis Ernu Solberg, forsætisráðherra Noregs þjóðargjöf Íslendinga til Norðmanna í tilefni af því að árið 2005 voru 100 ár liðin frá endurreisn norska konungdæmisins. Fór afhendingin fram við hátíðlega athöfn í Þjóðarbókhlöðunni í Osló.
Þjóðargjöfin samanstendur af fimm bindum og hefur Hið íslenzka fornritafélag haft veg og vanda af útgáfunni. Er um að ræða nýjar útgáfur norskra konungasagna, sem allar voru ritaðar á Íslandi á miðöldum. Árið 2007 kom Sverris saga út og Morkinskinna í tveimur bindum árið 2011. Í haust komu út tvö bindi með Hákonar sögu og Böglunga sögu. Allar eru sögurnar mikilvægar heimildir um sögu Noregs og voru bindin fimm afhent í viðhafnarútgáfu.
Af þessu tilefni hélt forsætisráðherra ávarp um norsku konungasagnirnar og tengsl þeirra við Ísland.