Áskrift og RSS
Áskrift að efni á vef forsætisráðuneytisins
Í boði er að skrá sig í áskrift að efni, þ.e. vöktun á t.d. fréttum og fá sendar tilkynningar í tölvupósti þegar nýtt efni er birt á vef ráðuneytisins. Nokkrir efnisflokkar eru í boði.
Nýr notandi smellir á hnappinn „Nýskráning“. Upp kemur gluggi þar sem netfang er skráð og lykilorð valið, að því loknu er smellt á „Vista“. Í kjölfarið berst tölvupóstur á skráð netfang, í honum er vefslóð sem þarf að smella á en með því er
aðgangurinn virkjaður.
Með netfanginu og lykilorðinu er hægt að skrá sig inn á vefnum og velja áskriftarflokk(a). Áskrifendur geta ávallt skráð sig inn og breytt áskrift sinni.
Týnist lykilorð er
smellt á hnappinn „Týnt lykilorð“. Upp kemur gluggi þar sem netfangið er skráð, notandi smellir á „Senda“ og lykilorðið berst strax í tölvupósti á viðkomandi netfang.
Nánari upplýsingar og aðstoð er hægt að fá með því að senda tölvupóst á vefstjóra ráðuneytisins.
RSS
Önnur leið til að vera í áskrift er að nota RSS-lesara. Hægt er að gerast áskrifandi að ýmsum efnisþáttum vefsins, svo sem:
- Fréttir
Þráðurinn birtir allar fréttir frá ráðuneyti. - Rræður og greinar forsætisráðherra
Þráðurinn birtir opinberar ræður og greinar forsætisráðherra. - Skýrslur og annað útgefið efni
Þráðurinn birtir upplýsingar um skýrslur og annað útgefið efni frá forsætisráðuneytinu.
- Dagskrá ríkisstjórnarfunda
Dagskráin er birt strax eftir fundi ríkisstjórnar.
Hvað er RSS?
RSS-veita er skjal sem byggir upp nokkurskonar efnisyfirlit vefjar og auðveldar þannig notendum að fylgjast með nýju efni. Notendur geta safnað í RSS-lesara mörgum efnisyfirlitum og fylgst með nýju efni á fjölda vefja í einu. Nýtt efni birtist efst í lesaranum. Sjá nánar um RSS á W3C Web Accessibility Initiative.
Margskonar RSS lesarar eru í boði og er líklegt að flestir tölvunotendur séu þegar með slíkt forrit uppsett í tölvum sínum þar sem þeir eru innbyggðir í flesta vafra.

