Ráðherrabústaðir

Ráðherrabústaðir

Tveir ráðherrabústaðir tilheyra embætti forsætisráðuneytisins, Ráðherrabústaðurinn við Tjarnargötu og Þingvallabærinn. Ráðherrabústaðurinn Tjarnargötu 32 er við Reykjavíkurtjörn í miðbæ Reykjavíkur en Þingvallabærinn stendur á bökkum Öxarár með Þingvallavatn í næsta nágrenni. Bústaðirnir þjóna báðir því hlutverki að vera opinberir embættisbústaðir þar sem móttökur fara fram og fundir haldnir.

Tjarnargata

Tjarnargata 2Ráðherrabústaðurinn við Tjarnargötu var upphaflega reistur að Sólbakka við Önundarfjörð árið 1892 af norska hvalfangaranum Hans Ellefsen. Í byrjun 20. aldarinnar seldi hann Hannesi Hafstein, fyrsta ráðherra Íslands, húsið fyrir táknræna upphæð, sumir segja 1 krónu aðrir 5 krónur, og var það þá flutt til Reykjavíkur og endurbyggt í núverandi mynd árið 1906. Ráðherrar Íslands bjuggu í því allt til ársins 1943 en frá þeim tíma hefur það verið notað til fundahalda og fyrir móttökur ýmis konar.

Nánar um ráðherrabústaðinn við Tjarnargötu

Þingvellir

ÞingvallabærinnÞingvallabær er opinber sumardvalarstaður forsætisráðherra.  Hann er jafnframt  notaður fyrir ýmsar móttökur á vegum embættisins. Bærinn, sem teiknaður var af Guðjóni Samúelssyni og reistur fyrir alþingishátíðina árið 1930, var upphaflega með þremur burstum og torfþaki. Nýttist hann lengstum sem aðsetur umsjónarmanns þjóðgarðsins og sem prestssetur en 1974 var tveimur burstum bætt við vestan megin og var þar opinber bústaður forsætisráðherra, þar til embættið tók allt húsið yfir.

Nánar um ráðherrabústaðinn á Þingvöllum


Texti og myndir á þessari síðu eru úr bæklingi sem forsætisráðuneytið gaf út 2007.