Um vernd fána
A. Íslenski fáninn
Í fánalögum segir að enginn megi óvirða þjóðfánann, hvorki í orði né verki, og að brot gegn þessu ákvæði varði sektum, varðhaldi eða fangelsi.
Önnur ákvæði til verndar fánanum eru þessi:
- Engin aukamerki má hafa í fánanum önnur en þau, sem heimiluð eru í fánalögum, reglugerðum samkvæmt þeim eða forsetaúrskurðum um fánann.
- Enginn má nota fána, sem er ekki í samræmi við ákvæði fánalaga og auglýsingar um fánaliti. Eigi má nota upplitaða fána, óhreina, trosnaða eða skemmda. Sé ekki unnt að lagfæra slíkan fána, skal hann ónýttur með því að brenna hann. Lögreglan skal hafa eftirlit með því að farið sé eftir fyrirmælum þessum og má gera slíka fána upptæka, séu þeir notaðir á almannafæri.
- Óheimilt er að hafa á boðstólum, selja eða leigja aðra fána en þá, sem gerðir eru í réttum litum og réttum hlutföllum reita og krossa.
- Óheimilt er að nota fánann sem einkamerki einstaklinga, félaga eða stofnana eða sem auðkennismerki á aðgöngumiðum, samskotamerkjum eða öðrum þessháttar skilríkjum.
- Óheimilt er einstökum stjórnmálaflokkum og öðrum að nota fánann í áróðursskyni við kosningaundirbúning eða kosningar.
- Óheimilt er að nota fánann í firmamerki, vörumerki eða á söluvarning, umbúðir varnings eða í auglýsingum á vörum.
- Ef skrásett hefur verið af misgáningi vörumerki þar sem fáninn er notaður án heimildar, skal afmá það úr vörumerkjaskrá samkvæmt kröfu forsætisráðuneytisins. Ef maður setur fánann á söluvarning eða umbúðir hans, skal leitað dómsúrskurðar um að honum sé óheimilt að nota fánamerkið eða hafa vörur til sölu, sem auðkenndar eru með því. Auk þess má skylda hann til þess, ef nauðsyn krefur, að ónýta vöru eða umbúðir hennar, svo framarlega sem þær eru þá í vörslu hans eða að hann á annan hátt hefur umráð yfir þeim.
- Óheimilt er að selja eða bjóða til sölu vörur af erlendum uppruna, ef á þær eða umbúðir þeirra hefur verið sett mynd af íslenska fánanum, skjaldarmerki íslenska ríkisins eða öðrum hliðstæðum þjóðlegum táknum eða skírskotað til þeirra á annan hátt. (Lög nr.56/1978 um verðlag, samkeppnishömlur og óréttmæta viðskiptahætti, 37. gr., 3 mgr.).
B. Erlendir fánar
Hver, sem opinberlega smánar erlenda þjóð eða erlent ríki, æðsta ráðamann, þjóðhöfðingja þess, fána þess eða annað viðurkennt þjóðarmerki, fána Sameinuðu þjóðanna eða fána Evrópuráðs, skal sæta sektum, varðhaldi eða fangelsi allt að 6 árum, ef miklar sakir eru. (Almenn hegningarlög nr. 19, 12. febrúar 1940, 95. gr.)
