Fálkaorðan
Þegar Kristján konungur X. kom til Íslands sumarið 1921, var gefið út konungsbréf um stofnun hinnar íslensku fálkaorðu, undirritað í Reykjavík 3. júlí 1921.
Konungur Íslands var fyrsti stórmeistari fálkaorðunnar, en með stofnun lýðveldisins árið 1944 verður forseti Íslands stórmeistari.
Sérstök nefnd, orðunefnd, ræður málefnum orðunnar og gerir tillögur til stórmeistara um hverja skuli sæma henni.
Nánari upplýsingar um starfsemi orðunefndar veitir orðuritari, auk þess sem hann veitir móttöku öllum tillögum um orðuveitingar. Orðuritari er ávallt starfandi forsetaritari. Vinsamlega athugið að tillögur verða að berast skriflega og undirritaðar.
Sími: 540-4400
Netfang: forseti@forseti.is
Veffang: forseti.is
Orðustigin voru í upphafi þrjú, en eru nú fimm: Keðja ásamt stórkrossstjörnu. stórkross, stórriddarakross með stjörnu, stórriddarakross og riddarakross.
Sjá nánar um orðuna á http://forseti.is/Forsida/Falkaordan/
Um orðuna gilda ákvæði forsetabréfs:
- Nr. 145/2005 31. desember FORSETABRÉF um hina íslensku fálkaorðu. 6.1.2006
- Nr. 144/2005 31. desember FORSETABRÉF um starfsháttu orðunefndar. 6.1.2006

