Könnun á starfsemi Upptökuheimilis ríkisins, Unglingaheimilis ríkisins og meðferðarheimilisins í Smáratúni og á Torfastöðum
Nefnd sem forsætisráðherra skipaði á grundvelli laga nr. 26/2007 (vistheimilanefnd) hefur skilað af sér áfangaskýrslu nr. 3, þar sem fjallað er um starfsemi Upptökuheimilis ríkisins á árunum 1945-1971, Unglingaheimilis ríkisins 1971-1994 og meðferðarheilanna í Smáratúni og á Torfastöðum 1979-1994. Þar er í samræmi við erindisbréf lýst starfsemi viðkomandi stofnana, tildrögum þess að börn voru þar vistuð, opinberu eftirliti með starfseminni og leitast við að varpa ljósi á hvort börn hafi þar sætt illri meðferð eða ofbeldi.

