Stjórnarfrumvörp
-
Stjórnarfrumvörp – gátlisti fyrir ráðuneytin (útfyllanlegt eyðublað)
-
Fyrirmynd að efnisyfirliti athugasemda með stjórnarfrumvörpun ráðuneytum til hægðarauka
Reglur um undirbúning og meðferð stjórnarfrumvarpa
1. Afgreiðsla ríkisstjórnar
Frumvörp til laga sem ráðherrar áforma að leggja fyrir Alþingi skulu lögum samkvæmt áður tekin til meðferðar á ráðherrafundi, sbr. 2. gr. laga um Stjórnarráð Íslands nr. 73/1969. Skulu frumvörp undirbúin og frá þeim gengið í samræmi við þessar reglur og Handbók um undirbúning og frágang lagafrumvarpa.
2. Tilefni og nauðsyn lagasetningar
Í almennum athugasemdum skal greina frá tilefni lagasetningar og rökstyðja hvers vegna hún er nauðsynleg.
3. Stjórnarskrá og alþjóðlegar skuldbindingar
Ef samning frumvarps hefur gefið tilefni til að meta hvort það samrýmist stjórnarskrá eða alþjóðlegum skuldbindingum skal þess getið í almennum athugasemdum.
4. Samráð milli ráðuneyta, við hagsmunaaðila og almenning
Ef frumvarp varðar málefnasvið annars ráðuneytis skal það borið undir viðkomandi ráðuneyti í tæka tíð fyrir ráðherrafund. Einnig skal leitast við að kynna frumvarp öðrum ráðuneytum fyrir ráðherrafund ef ætla má að efni þess tengist málefnasviðum þeirra. Þegar um veigamikil mál er að ræða sem ekki er að finna í þingmálaskrá ríkisstjórnar er æskilegt að kynna þau í ríkisstjórn áður en samning frumvarps hefst.
Í almennum athugasemdum með lagafrumvörpum skal gera grein fyrir því hverja frumvarp snerti fyrst og fremst og hvernig samráði hafi verið háttað, sjá nánari leiðbeiningar í Handbók.
5. Mat á áhrifum
5.1. Almennt
Í almennum athugasemdum með frumvörpum skal koma fram stutt og almennt mat á áhrifum fyrirhugaðrar lagasetningar. Rekja skal afleiðingar fyrir almannahagsmuni og helstu hagsmunaaðila. Áhrif á stjórnsýslu ríkisins skulu rakin eftir því sem tilefni er til. Rökstyðja skal hvers vegna ávinningurinn af samþykkt frumvarps sé meiri en hugsanleg neikvæð eða íþyngjandi áhrif. Endursegja skal stuttlega það sértæka mat á áhrifum sem farið hefur fram, sjá 5.2.
5.2. Sértækt mat á áhrifum
5.2.1. Áhrif á fjárhag ríkisins
Umsögn fjármálaráðuneytis um áhrif lagafrumvarps á fjárhag ríkisins skal fylgja því við meðferð ríkisstjórnar. Í þessu skyni skal kynna fjármálaráðuneyti efnisatriði hvers máls tímanlega og að jafnaði áður en samning frumvarps hefst í samræmi við leiðbeiningar fjármálaráðuneytis um gerð umsagna. Fyrir viðameiri frumvörp sem horfur eru á að hafi umtalsverð fjárhagsáhrif og geta kallað á talsverða upplýsingaöflun, greiningu og áætlanagerð skal að jafnaði miðað við tveggja vikna fyrirvara fyrir ríkisstjórnarfund en fyrir veigaminni frumvörp eða frumvörp sem ekki eru talin hafa fjárhagsáhrif nægir yfirleitt vikufrestur. Umsögn fjármálaráðuneytis skal prentuð sem fylgiskjal með frumvarpi þegar það er lagt fram á Alþingi.
5.2.2 Áhrif á fjármál sveitarfélaga
Samkvæmt samkomulagi við Samband íslenskra sveitarfélaga gildir að hafi frumvarp einvörðungu eða að verulegu leyti bein áhrif á sveitarfélögin skulu þau kostnaðarmetin með tilliti til heildaráhrifa á fjárhag sveitarfélaga.
5.2.3 Mat á nauðsyn eftirlitsreglna
Þegar stjórnarfrumvarp felur í sér ákvæði um eftirlit með starfsemi fyrirtækja eða einstaklinga skal fylgja því greinargerð um mat skv. 1. mgr. 3. gr. laga nr. 27/1999, um opinberar eftirlitsreglur. Sú greinargerð skal að lágmarki unnin í samræmi við Grunnmat á eftirlitsreglum, sem birt er á heimasíðu forsætisráðuneytisins.
5.2.4. Annað
Þegar tilefni er til skal að auki meta önnur sértæk áhrif, svo sem áhrif á umhverfið og jafnrétti kynjanna, sbr. gátlista.
6. Frumvörp er varða samninginn um Evrópska efnahagssvæðið
Ef frumvarp felur í sér innleiðingu á EES-gerð skal þess getið í ákvæði næst á undan gildistökuákvæði, enda beri aðrar greinar frumvarpsins það ekki skýrlega með sér. Tekið skal fram í almennum athugasemdum með frumvarpi hvaða leiðir hafi verið færar til innleiðingar og hvers vegna leið frumvarpsins hafi orðið fyrir valinu.
Gæta skal að tilkynningarskyldu gagnvart Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) þar sem það á við, einkum varðandi ríkisstyrki og tæknilegar reglur um vöru og fjarþjónustu, sbr. l. nr. 57/2000.
7. Málfar, íslensk lagahefð
Frumvörp skulu sett fram á skýru og einföldu máli. Texti lagafrumvarpa á að vera á lýtalausu íslensku máli og laus við villur í málfari og stafsetningu, greinarmerkjasetning á að vera skýr og frágangur til fyrirmyndar. Þá skulu frumvörp falla vel að öðrum lögum og vera í samræmi við íslenska lagahefð. Skjaladeild Alþingis annast yfirlestur frumvarpa að þessu leyti.
8. Eftirfylgni
Stjórnarfrumvörp, önnur en frumvarp til fjárlaga, fjáraukalaga og lokafjárlaga, skulu send forsætisráðuneytinu ásamt útfylltum gátlista, sjá fylgiskjal, í síðasta lagi viku fyrir ríkisstjórnarfund. Áður en þau verða tekin til meðferðar skal liggja fyrir umsögn löggjafarskrifstofu forsætisráðuneytisins um það hvort frumvarpið hafi verið unnið í samræmi við reglur þessar. Forsætisráðherra getur veitt undanþágu frá þessu ákvæði ef brýna nauðsyn ber til.
Útfylltur gátlisti og umsögn löggjafarskrifstofu forsætisráðuneytisins falla undir trúnaðarákvæði 1. tölul. 4. gr. upplýsingalaga nema ríkisstjórnin ákveði annað.
9. Samþykki þingflokka
Samþykki ríkisstjórnar er að jafnaði skilyrt samþykki þingflokka stjórnarflokkanna, nema annað sé ákveðið. Þingflokkar stjórnarflokkanna tilkynna viðkomandi ráðherra eða fulltrúa hans skriflega um afgreiðslu sína með afriti til ritara ríkisstjórnarinnar. Ritari heldur skrá yfir tillögur ráðherra um þingmál ríkisstjórnarinnar og afdrif þeirra í þingflokkum hennar.
Samþykkt í ríkisstjórn 28. september 2010
