Hoppa yfir valmynd

Samkeppni um kórlag fyrir 80 ára afmæli lýðveldisins

Afmælisnefnd  í samvinnu við samtök íslenskra kóra og kórstjóra, efndi til samkeppni um nýtt kórlag við ljóð Þórarins Eldjárns sem flutt verður í tengslum við 80 ára afmæli lýðveldisins 17. júní 2024.

Dómnefnd var skipuð fulltrúum frá Tónskáldafélagi Íslands, Félagi tónskálda og textahöfunda, Félagi íslenskra kórstjóra auk fulltrúa afmælisnefndar en formaður dómnefndar var Hildigunnur Rúnarsdóttir tónskáld. Alls bárust 63 lög í samkeppnina og urðu niðurstöðurnar þessar:

Fyrstu verðlaun:

Atli Ingólfsson tónskáld

Nótur við verðlaunalagið:

Ávarp Fjallkonunnar - fyrir blandaðan kór c-moll

Ávarp Fjallkonunnar - fyrir blandaðan kór d-moll

Ávarp Fjallkonunnar - karlaraddir

Ávarp Fjallkonunnar - kvenraddir

Ávarp Fjallkonunnar - laglína með hljómum

Ávarp Fjallkonunnar - laglína með undirleik

Ávarp Fjallkonunnar - karlaraddir, undirleikur til æfinga

Ávarp Fjallkonunnar - kvenraddir, undirleikur til æfinga

Ávarp Fjallkonunnar - blandaður kór, undirleikur til æfinga c-moll

Ávarp Fjallkonunnar - blandaður kór, undirleikur til æfinga d-moll

 

Sérstaka viðurkenningu hlutu:

Björgvin Þ. Valdimarsson
Guðný Einarsdóttir
Sigurður Flosason
Sigurður Rúnar Jónsson
Þorvaldur Örn Davíðsson

Ávarp fjallkonunnar 2015  

eftir Þórarin Eldjárn

1., 2. og 4. erindi með breytingu frá höfundi, til notkunar við samningu sönglags.

Um miðjan júnímánuð
myrkri er horfinn styrkur,
fánar blakta í blænum,
blöðrur svífa, lúðra-
hljómur upp til himins
hefur sig og vefur,
söngur veifar vængjum,
víbrar eins og tíbrá.

Fjallkonan af fjöllum
– faldskrýdd – kemur aldrei.
Saman sjá vill koma
sína þjóð og skína,
sundurleita sindra
sjálfstæða og frjálsa,
handvissa um að höndla
hamingju og gaman.

Heldur betur höldum
hátíð, okkur látum
dreyma - lifa drauma,
dvelja í núi og velja
jafnrétti og jöfnuð,
jákvæðni og ákefð,
leið sem liggur héðan,
ljósið alltaf kjósa.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum