Hoppa yfir valmynd
5. janúar 2024

Nýtt kórlag

Afmælisnefnd í samvinnu við samtök íslenskra kóra og kórstjóra, efndi til samkeppni um nýtt kórlag við ljóð Þórarins Eldjárns, Ávarp fjallkonunnar 2015, sem flutt verður í tengslum við 80 ára afmæli lýðveldisins 17. júní 2024.

Dómnefnd var skipuð fulltrúum frá Tónskáldafélagi Íslands, Félagi tónskálda og textahöfunda, Félagi íslenskra kórstjóra auk fulltrúa afmælisnefndar en formaður dómnefndar var Hildigunnur Rúnarsdóttir tónskáld. Alls bárust 63 lög í samkeppnina og urðu niðurstöðurnar þessar:

Fyrstu verðlaun:

Atli Ingólfsson tónskáld

Nótur við verðlaunalagið:

Sérstaka viðurkenningu hlutu:

  • Björgvin Þ. Valdimarsson
  • Guðný Einarsdóttir
  • Sigurður Flosason
  • Sigurður Rúnar Jónsson
  • Þorvaldur Örn Davíðsson

Fréttatilkynning um niðurstöður samkeppninnar

Myndir frá verðlaunaafhendingu

 

Ávarp fjallkonunnar 2015

eftir Þórarin Eldjárn

1., 2. og 4. erindi með breytingu frá höfundi, til notkunar við samningu sönglags.

Um miðjan júnímánuð
myrkri er horfinn styrkur,
fánar blakta í blænum,
blöðrur svífa, lúðra-
hljómur upp til himins
hefur sig og vefur,
söngur veifar vængjum,
víbrar eins og tíbrá.

Fjallkonan af fjöllum
– faldskrýdd – kemur aldrei.
Saman sjá vill koma
sína þjóð og skína,
sundurleita sindra
sjálfstæða og frjálsa,
handvissa um að höndla
hamingju og gaman.

Heldur betur höldum
hátíð, okkur látum
dreyma - lifa drauma,
dvelja í núi og velja
jafnrétti og jöfnuð,
jákvæðni og ákefð,
leið sem liggur héðan,
ljósið alltaf kjósa.

Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum