Hoppa yfir valmynd
10. janúar 2024 Forsætisráðuneytið

Viðburðir í tilefni 80 ára afmælis lýðveldisins

Frá þjóðhátíðardagskrá á Austurvelli 17. júní 2023. - mynd

Íslenska lýðveldið fagnar á árinu sem nú er hafið 80 ára afmæli og verður tímamótanna minnst með ýmsum hætti.

Nefnd sem forsætisráðherra skipaði síðastliðið haust hefur unnið að undirbúningi viðburða í tilefni afmælisins. Yfirlit yfir viðburðina er að finna á sérstöku vefsvæði en meðal þeirra eru útgáfa bókar um þjóðhátíðarljóð, hátíð á Hrafnseyri, þjóðhátíð á Þingvöllum, gönguferðir um þjóðlendur og myndræn skráning um lýðveldi og lýðræði. Þann 17. júní, þegar 80 ár eru liðin frá stofnun lýðveldis á Íslandi, verður dagskrá og kórasöngur um allt land.

Vefsvæði vegna viðburða í tilefni 80 ára afmæli lýðveldisins á árinu 2024

 

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum