Hoppa yfir valmynd

Alþjóðlegir sérfræðingar velkomnir!

Greiður aðgangur að sérhæfðri þekkingu er ein mikilvægasta forsenda þess að áform um vöxt fyrirtækja í hugverkaiðnaðar og sprotafyrirtækja verði að veruleika, en Samtök iðnaðarins spá því að hér á landi vanti 9 þúsund sérfræðinga á næstu 5 árum ef vaxtaspár eiga eftir að ganga. Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar kemur fram að auðvelda skuli íslenskum fyrirtækjum að ráða til sín sérfræðinga frá löndum utan evrópska efnahagssvæðisins. Markviss vinna þessa efnis fór fram innan háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytisins árið 2022, í samstarfi við félags- og vinnumarkaðsráðuneytið, við að kortleggja áskoranir þessu tengdu og móta tillögur. Í október 2022 voru fjórar leiðir kynntar fyrir ríkisstjórn sem ætlað er að liðka fyrir komu alþjóðlegra sérfræðinga og auka aðgengi að sérhæfðri þekkingu. Tillögurnar eiga það sammerkt að hafa aukið svigrúm og skilvirkni að leiðarljósi. 

Í kjölfar þessa kynntu forsætisráðherra, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra og félags- og vinnumarkaðsráðherra nýtt og skilvirkara kerfi um atvinnuréttindi fólks frá löndum utan EES snemma árs 2023. Felur þetta í sér fjórar mismunandi aðgerðir: 

  1. Reglur um dvalar- og atvinnuréttindi útlendinga rýmkaðar 
  1. Fyrirsjáanleiki tryggður með spá um mannaflaþörf 
  1. Stjórnsýsla einfölduð með sameiningu dvalar- og atvinnuleyfa 
  1. Umsóknarferli um dvalarleyfi einfaldað og bætt með stafvæðingu 

Tillögur sem kynntar voru fyrir ríkisstjórn að hausti 2022 voru: 

Lagt var til að breytingar verði gerðar á lögum um atvinnuréttindi útlendinga í aðgerð sem nefnd hefur verið Starfalisti fyrir sérhæfða þekkingu. Breytingin felur í sér heimild til að gefa út atvinnuleyfi vegna starfa sem krefjast sérhæfðrar þekkingar sem tímabundinn skortur er á hér á landi. Í þessu felst að útgefinn verði listi sem tilgreinir slík störf og í framhaldi verði unnt að gefa út fleiri atvinnuleyfi á skemmri tíma en nú er, með tilheyrandi aukningu á fyrirsjáanleika fyrir fólk og fyrirtæki.

Auk þessa verður áhersla lögð á aðgengilegt og öflugt, en þó einfalt, upplýsinga- og umsóknarferli þar sem nálgast má allar upplýsingar og eyðublöð á einum stað. Þetta er sérstaklega hugsað fyrir þau sem ekki falla undir starfalistann til að einfalda umsóknarferli og bæta upplýsingagjöf með það að markmiði að hraða afgreiðslu með aukinni skilvirkni. Kerfið mun svo nýtast sem fyrirmynd að tímabærum endurbótum á heildrænu upplýsinga- og umsóknarkerfi fyrir fleiri hópa hér á landi. 

Með það að leiðarljósi að íslenskir háskólar verði eftirsóknarverður valkostur fyrir bæði íslenska og erlenda námsmenn er lagt til að námsframboð á greinum sem kenndar eru á ensku verði aukið. Í kjölfar útskriftar fái nemendur frá löndum utan EES a.m.k. tveggja ára dvalarleyfi til þess að leita að atvinnu hér á landi á grundvelli sérfræðiþekkingar sinnar, en þriggja ára dvalarleyfi að námu loknu var að lokum tryggt með nýju kerfi um atvinnuréttindi fólks utan EES. Þá hafa átta samstarfsverkefni háskólanna, sem kynnt voru í lok árs 2022, fjölgun alþjóðlegra nemenda að markmiði. 

Einnig var lagt til að erlendum sérfræðingum sem stunda fjarvinnu á Íslandi verði gert auðveldara að starfa óháð staðsetningu, m.a. með áframhaldandi rýmkun reglna líkt og gaf góða raun í heimsfaraldri. 

Mikilvægt er að íslensk stjórnvöld sendi skýr skilaboð þess efnis að Ísland bjóði erlenda sérfræðinga velkomna með markvissri markaðssetningu. Þá er mikilvægt að meta árangur og móta frekari aðgerðir. Til þess þarf traustar upplýsingar um gögn um atriði á borð við hagræn áhrif hugverkaiðnaðarins og mannaflaþörf. Reglur um skattfrádrátt verða að vera fyrirsjáanlegar, sem og aðrar ívilnanir svo Ísland standist alþjóðlegan samanburð þegar kemur að sérhæfðri þekkingu. Skoða þarf ávinning þess að sérfræðingar hjá alþjóðlegum fyrirtækjum hafi svigrúm til að flytjast á milli starfsstöðva, auk þess sem skoða þarf reglur um sjálfstætt starfandi einstaklinga. Loks er mikilvægt að efla innviði og umhverfi fyrri fjölskyldur erlendra sérfræðinga, enda ljóst að litið er til námsframboðs fyrir börn og ungmenni þegar búsetuland er valið til skamms tíma, auk þess sem þörf er á auknu aðgengi fyrir íslenskukennslu fyrir erlendar fjölskyldur sem hyggjast setjast að á Íslandi, líkt og kom fram á vinnustofu fyrir alþjóðlega sérfræðinga á Íslandi og aðra hagaðila sem háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra stóð fyrir haustið 2022.

 

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum