Hoppa yfir valmynd
31. janúar 2020 Forsætisráðuneytið

Upplýsingafundur þjóðaröryggisráðs

Í dag var haldinn upplýsingafundur í þjóðaröryggisráði í tilefni af yfirlýsingu Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar um að kórónaveirufaraldurinn sem nú geisar sé alþjóðleg heilbrigðisógn. Stofnunin mælir hins vegar hvorki með almennu ferðabanni né hindrunum á viðskiptum milli landa. 

Gestir fundarins voru Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra, Ásta Valdimarsdóttir ráðuneytisstjóri heilbrigðisráðuneytisins, Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir og Jón Bjartmarz yfirlögregluþjónn hjá  Ríkislögreglustjóra.  

Á fundinum var farið yfir stöðu mála og viðbúnað sóttvarnalæknis í samvinnu við almannavarnir vegna heimsfaraldursins. Verið er að yfirfara allar viðbragðsáætlanir og samræma viðbrögð viðbragðsaðila í forvarnaskyni.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum