Hoppa yfir valmynd
26. febrúar 2024 Forsætisráðuneytið, Menningar- og viðskiptaráðuneytið

Málþing með Nóbelsverðlaunahafanum Joseph Stiglitz

Forsætisráðuneytið og menningar- og viðskiptaráðuneytið í samvinnu við Háskóla Íslands standa fyrir málþingi með Nóbelsverðlaunahafanum Joseph Stiglitz. Málþingið fer fram í Veröld, húsi Vigdísar, föstudaginn 1. mars kl. 12-13.30.

Á málþinginu mun Stiglitz flytja erindi undir yfirskriftinni Freedom and Liberty: Perspectives from 21st Century Economics.

Stiglitz sem hlaut Nóbelsverðlaunin í hagfræði árið 2001 er nú prófessor við Columbia háskóla í New York. Hann var um skeið einn af efnahagsráðgjöfum Bill Clinton Bandaríkjaforseta og um tíma aðalhagfræðingur Alþjóðabankans.

Dagskrá málþingsins:

  • Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra, opnunarávarp.
  • Joseph Stiglitz flytur erindið Freedom and Liberty: Perspectives from 21st Century Economics.
  • Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands og fundarstjóri, stýrir spurningum og svörum úr sal.
  • Lilja D. Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra, lokar málþinginu með samantekt.

Málþingið fer fram á ensku og er öllum opið á meðan húsrúm leyfir en einnig verður hægt að fylgjast með í beinu streymi.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum