Hoppa yfir valmynd
28. febrúar 2024 Matvælaráðuneytið

Óskað eftir tilnefningum fyrir landbúnaðarverðlaun matvælaráðuneytisins 2024

Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra afhendir Þorgrími Einari Guðbjartssyni og Helgu Elínborgu Guðmundsdóttur á Erpsstöðum í Dalabyggð landbúnaðarverðlaunin 2023. - myndSigurjón Ragnar
Óskað er eftir tilnefningum til landbúnaðarverðlauna sem matvælaráðherra veitir árlega í tengslum við Búnaðarþing.

Öllum er frjálst að senda inn tilnefningar um bændabýli eða önnur landbúnaðarfyrirtæki og félög sem talin eru hafa verið til fyrirmyndar að einhverju leyti í íslenskum landbúnaði á síðasta ári.

Stutt greinargerð skal fylgja með tilnefningu þar sem fram koma helstu upplýsingar um starfsemi tilnefndra ásamt rökstuðningi fyrir tilnefningunni. Verðlaunahafar geta verið allt að þrír.

Við valið er litið til þátta eins og frumkvöðlastarfs, nýjunga í starfsháttum eða annars árangurs sem getur verið öðrum fyrirmynd í landbúnaði svo sem á sviði umhverfisstjórnunar, loftslagsmála, ræktunarstarfs eða annarra þátta í starfseminni. Ráðherra landbúnaðarmála veitti landbúnaðarverðlaun fyrst 1997 og þau hafa verið veitt flest ár síðan eða alls í 25 skipti.

Frestur til að skila inn tillögum hefur verið framlengdur til 7. mars 2024.

Tillögur merktar „Landbúnaðarverðlaun“ sendist á netfangið [email protected].

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum