Hoppa yfir valmynd
22. febrúar 2006 Forsætisráðuneytið

Fundur forsætisráðherra með forsætisráðherra Bretlands

Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra átti fyrr í dag fund í Downingstræti 10 með Tony Blair forsætisráðherra Bretlands. Á fundinum minntust ráðherrarnir þess að um þessar mundir eru 30 ár síðan forsætisráðherra Íslands heimsótti starfsbróður sinn í Bretlandi síðast. Þá ræddu þeir einnig  horfur og þróun mála innan Evrópusambandsins, öryggismál á Norður-Atlantshafi, þar með talið stöðuna í samningaviðræðum Íslands og Bandaríkjanna um varnarsamstarf landanna, og ástandið í Miðausturlöndum.

Að loknum þeim fundi hélt forsætisráðherra erindi um fjárfestingar íslenskra fyrirtækja á Bretlandi á hádegisfundi sem KB banki og dótturfélög bankans boðuðu til. Sá fundur var fjölsóttur af fulltrúum úr bresku fjármála- og atvinnulífi, ásamt breskum fjölmiðlum.  Síðar í dag kynnir forsætisráðherra sér svo starfsemi fyrirtækja í eigu Baugs Group.  Í kvöld mun forsætisráðherra svo þiggja boð Eiðs Smára Guðjohnsen, fyrirliða íslenska landsliðsins í knattspyrnu og leikmanns Chelsea, og horfa á leik Chelsea og Barcelona á Stamford Bridge.

Næstu tvo daga mun forsætisráðherra heimsækja fleiri íslensk fyrirtæki í Lundúnum.

 

 

                                                                                                                      Reykjavík 22. febrúar 2006

 

 



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum