Hoppa yfir valmynd
23. febrúar 2006 Forsætisráðuneytið

Forsætisráðherra hjá íslenskum fyrirtækjum í Bretlandi

Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra heimsótti í dag höfuðstöðvar Excel Airways, dótturfélags Avion Group, og kynnti sér starfsemi félagsins og opnaði formlega Mitre Court, höfuðstöðvar Travel City sem er í eigu félagsins. Í kvöld heimsækir forsætisráðherra sýninguna Pure Iceland í Vísindasafninu í Lundúnum.

Á morgun heimsækir forsætisráðherra starfsstöðvar Landsbanka Íslands hf. og Íslandsbanka hf. í borginni, auk þess að vígja nýjar skrifstofur Icelandair. Heimsókn forsætisráðherra til Bretlands lýkur síðdegis á morgun.

 

                                                                                                        Reykjavík 23. febrúar 2006

 

 

 



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum