Hoppa yfir valmynd
16. júní 2006 Forsætisráðuneytið

Fundur með Jaap de Hoop Scheffer framkvæmdastjóra Atlantshafsbandalagsins

Geir H. Haarde forsætisráðherra og Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra með Jaap de Hoop Scheffer framkvæmdastjóra Atlantshafsbandalagsins
Geir H. Haarde forsætisráðherra og Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra með Jaap de Hoop Scheffer framkvæmdastjóra Atlantshafsbandalagsins

Geir H. Haarde forsætisráðherra og Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra áttu í dag fund með Jaap de Hoop Scheffer framkvæmdastjóra Atlantshafsbandalagsins í Ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu. Á fundinum var rætt um málefni Atlantshafsbandalagsins og undirbúning fyrir leiðtogafund þess, sem haldinn verður í Riga í Lettlandi í nóvember n.k. Einnig var farið yfir stöðu mála í viðræðum Íslands og Bandaríkjanna um varnarsamstarfið.


                                                                                                  Reykjavík, 16. júní 2006



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum