Hoppa yfir valmynd
29. nóvember 2006 Forsætisráðuneytið

Leiðtogafundi Atlantshafsbandalagsins lauk í Riga í dag

Mynd: Frá leiðtogafundi Atlantshafsbandalagsins í Riga
Mynd: Frá leiðtogafundi Atlantshafsbandalagsins í Riga

Geir H. Haarde, forsætisráðherra, og Valgerður Sverrisdóttir, utanríkisráðherra, sátu leiðtogafund Atlantshafsbandalagsins sem lauk í Riga í dag.

Á fundinum var fjallað um ástand og horfur í Afganistan og þann árangur sem náðst hefur með starfssemi Alþjóðlegu öryggissveitanna (ISAF) og lýst eindregnum vilja til að standa við skuldbindingar samfélags þjóðanna gagnvart Afgönum og ríkisstjórn landsins. Af þessu tilefni greindi forsætisráðherra frá því að íslensk stjórnvöld myndu auka framlög til endurreisnar- og þróunarverkefna í Afganistan í landinu, auk þess sem staðið yrði að flugflutningum í þágu þeirra bandalagsríkja sem hafa liðsafla í sunnanverðu Afganistan.

Einnig var fjallað um samstarf Atlantshafsbandalagins við önnur samtök og ríki og um hugsanlega frekari fjölgun aðildarríkja. Forsætisráðherra fagnaði áformum um eflingu samráðs og samstarfs bandalagsins við alþjóðleg og svæðisbundin samtök og ríki sem hafa sömu grundvallargildi og hagsmuni. Hvað varðar áframhaldandi stækkun bandalagsins, lýsti forsætisráðherra yfir almennum stuðningi við stækkunarferlið og væntanlega aðild Albaníu, Króatíu og fyrrum Júgóslavíulýðveldisins Makedóníu. Ennfremur tók hann undir mikilvægi nánari tengsla bandalagsins við Úkraínu og Georgíu. Þá fagnaði hann aðild Bosníu-Hersegóvníu, Serbíu og Svartfjallalands að Samstarfi í þágu friðar (PFP).

Í umræðum um pólitíska og hernaðarlega aðlögun Atlantshafsbandalagins sagði forsætisráðherra að um mjög nauðsynlegt ferli væri að ræða sem varðaði getu þess til þess að gegna hlutverki sínu við breyttar aðstæður. Um leið benti hann á að þetta mætti ekki verða til þess að bandalagið missti sjónar á viðvarandi tilgangi samtakanna, þ.e. sameiginlegum vörnum byggðum á sameiginlegum varnarskuldbindingum aðildarríkjanna. Í því samhengi sagði hann að Ísland hefði nú þá sérstöðu á meðal aðildarríkjanna að vera án reglubundins eftirlits og viðbúnaðar í lofti á friðartímum. Sú staða yrði úrlausnarefni fyrir íslensk stjórnvöld en janframt fyrir Atlantshafsbandalagið, enda hefði það ávallt nálgast öryggi aðildarríkjanna með heildstæðum hætti. Íslensk stjórnvöld væru ánægð með nýlegt samkomulag við Bandaríkin um varnarmál, en eftir stæði nauðsyn á eftirliti og viðbúnaði á friðartímum. Því yrði af Íslands hálfu óskað eftir að málið yrði tekið til umfjöllunar í N-Atlantshafsráðinu á næstu vikum.

Reykjavík 29. nóvember 2006



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum