Hoppa yfir valmynd
6. mars 2007 Forsætisráðuneytið

Skýrsla nefndar forsætisráðherra um endurskoðun örorkumats og eflingu starfsendurhæfingar

Nefnd forsætisráðherra um endurskoðun örorkumats og eflingu starfsendurhæfingar hefur lokið störfum og skilað sameiginlegu áliti og tillögum.

Nefndin var skipuð í framhaldi af yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar frá 15. nóvember 2005, til að greiða fyrir samkomulagi Alþýðusambands Íslands og Samtaka atvinnulífsins um áframhaldandi gildi kjarasamninga, þar sem ríkisstjórnin lýsti sig reiðubúna til samstarfs um leiðir til að draga úr vaxandi örorkubyrði lífeyrissjóða og jafna stöðuna á milli einstakra sjóða.

Nefndinni var falið að gera tillögur um samræmingu á viðmiðunum til örorkumats í almannatryggingakerfinu og lífeyrissjóðakerfinu þar sem fyrst og fremst verði horft til getu einstaklinga til að afla sér tekna. Ennfremur var nefndinni falið að gera tillögur um leiðir til að efla starfsendurhæfingu í því skyni að hjálpa einstaklingum sem af einhverjum ástæðum hafa ekki fest rætur á vinnumarkaði vegna örorku.

Álit nefndarinnar hefur verið kynnt í ríkisstjórn sem samþykkti, að tillögu forsætisráðherra, að fela fulltrúum þeirra ráðuneyta sem sæti áttu í nefndinni að fylgja tillögum nefndarinnar eftir, í samráði við Öryrkjabandalag Íslands, Landssamtök lífeyrissjóða og aðila vinnumarkaðrins, með það fyrir augum að tillögurnar komist til framkvæmda í byrjun árs 2008.

Nánari upplýsingar veita Bolli Þór Bollason, ráðuneytisstjóri og formaður nefndarinnar, og Sigrún Ólafsdóttir, forsætisráðuneytinu.

Reykjavík 6. mars 2007



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum