Hoppa yfir valmynd
25. apríl 2008 Forsætisráðuneytið

Aðalfundur Þróunarfélags Keflavíkurflugvallar

Aðalfundur Þróunarfélags Keflavíkurflugvallar ehf. var haldinn á skrifstofu félagsins í Reykjanesbæ 23. apríl síðastliðinn. Magnúsi Gunnarssyni og Stefáni Þórarinssyni, sem nú láta af stjórnarstörfum, voru þökkuð vel unnin störf. Í þeirra stað voru kjörnir þeir Páll Sigurjónsson verkfræðingur og Reynir Ólafsson viðskiptafræðingur. Árni Sigfússon bæjarstjóri var endurkjörinn í stjórn. Sjá nánar frétt af aðalfundinum á heimasíðu Þróunarfélags Keflavíkurflugvallar ehf., www.kadeco.is

Reykjavík 25. apríl 2008



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum