Hoppa yfir valmynd
9. janúar 2009 Forsætisráðuneytið

Ríkisstjórn ræður ráðuneytisstjóra í sérverkefni

Guðmundur Árnason, ráðuneytisstjóri í menntamálaráðuneytinu, hefur fengið 6 mánaða leyfi frá störfum til að sinna verkefnum fyrir ríkisstjórnina. Við stöðu hans tekur Halldór Árnason, skrifstofustjóri í forsætisráðuneytinu. Við stöðu Halldórs tekur Ragna Árnadóttir, skrifstofustjóri í dóms- og kirkjumálaráðuneytinu. Hún verður jafnframt staðgengill ráðuneytisstjóra í forsætisráðuneyti.

Verkefni Guðmundar mun felast í að fylgja eftir ákvörðunum og aðgerðum ríkisstjórnarinnar vegna fjármálahrunsins sl. haust. Hann mun vinna náið með þeim ráðherrum sem helst hafa með þau verkefni að gera, m.a. taka þátt í störfum helstu vinnuhópa á vegum ríkisstjórnarinnar og tryggja upplýsingaflæði frá þeim og stjórnsýslunni í heild.

Reykjavík 9. janúar 2009



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum