Hoppa yfir valmynd
30. júní 2009 Forsætisráðuneytið

Ríkisstjórn samþykkir að leggja fyrir Alþingi frumvarp til laga um stjórnlagaþing

Ríkisstjórnin hefur samþykkt að leggja fyrir Alþingi frumvarp forsætisráðherra um ráðgefandi stjórnlagaþing til samræmis við 100 daga áætlun stjórnarinnar. Frumvarpið er samið af Björgu Thorarensen lagaprófessor í samráði við fulltrúa allra þingflokka. Með því er brugðist við óskum um breytingar á stjórnarskrá sem ekki hefur náðst að knýja fram þrátt fyrir yfirlýstan vilja stjórnmálaflokka þar um á undanförnum áratugum.

Gert er ráð fyrir að stjórnlagaþingið verði kallað saman á þjóðhátíðardaginn 2010 og að til þess verði kosið með persónukjöri sem fram fari samhliða sveitarstjórnarkosningum það sama vor.

Verkefni stjórnlagaþings.

Samkvæmt frumvarpinu er ráðgert að stjórnlagaþing taki sérstaklega til skoðunar efnisatriði sem staðið hafa nær óbreytt allt frá setningu stjórnarskrárinnar 1874 og varða grunnhugtök íslensks stjórnskipulags, þingræðisregluna, þrískiptingu ríkisvaldsins, skipan löggjafarvaldsins og framkvæmdarvaldsins og tengsl þeirra innbyrðis, sjálfstæði dómstóla og eftirlit þeirra með öðrum handhöfum ríkisvaldsins, ákvæði um kosningar og kjördæmaskipan og þátttöku almennings í lýðræði. Þingið getur þó jafnframt tekið til endurskoðunar hvaðeina annað sem það kýs eða lagt til að bætt verði við stjórnarskrána nýjum ákvæðum eða köflum..

Starfstími þingsins.

Ráðgert er að þingið komi saman til fyrsta fundar þann 17. júní 2010 og að það ljúki störfum 17. febrúar 2011, en Alþingi getur framlengt starfstímann um allt að þrjá mánuði. Tillögum þingsins er ætlað að vera ráðgefandi fyrir Alþingi og skal frumvarp sem stjórnlagaþing samþykkir sent Alþingi til meðferðar.

Þjóðkjörnir fulltrúar.

Frumvarpið gerir ráð fyrir því að fulltrúar á stjórnlagaþingi verði kosnir persónukosningu samhliða næstu sveitarstjórnarkosningum vorið 2010 og eru í frumvarpinu gerðar ítarlegar tillögur um framkvæmd persónukjörsins sem miða að því að endurspegla afstöðu kjósenda til frambjóðenda eins vel og unnt er um leið og stuðlað verður að jöfnu hlutfalli karla og kvenna eins og kostur er í hópi þingfulltrúanna.

Starfstími og störf nefnda.

Lagt er til að þingið komi saman í þrígang; fyrst til að kjósa í nefndir og skipuleggja störf þeirra og samþykkja verkáætlun, annað skiptið verði nýtt til að ræða framkomnar tillögur nefnda og það þriðja til að taka til meðferðar og samþykkja frumvarp til stjórnarskipunarlaga. Forseti stjórnlagaþings sem kjörinn er á fyrsta fundi þess er æðsti embættismaður þingsins og leiðir hann jafnframt forsætisnefnd. Þá ber hann ábyrgð á rekstri stjórnlagaþings og fer með æðsta vald í stjórnsýslu þess.

Kynning á starfsemi og þátttaka almennings.

Í ljósi þess mikilvæga hlutverks sem stjórnlagaþingið gegnir við endurskoðun stjórnlaga ríkisins er ráðgert í frumvarpinu að starfsemi þess verði kynnt með víðtækum hætti í samfélaginu, bæði fyrir og eftir að kosið verður til þess. Jafnframt er ráð fyrir því gert að leitað verði eftir viðhorfum almennings til þeirra verkefna sem þingið tekur sér fyrir hendur.

Undirbúningur fyrir setningu þingsins.

Til þess að þingið geti hafið störf jafnskjótt og það kemur saman er afar mikilvægt að störf þess verði vel undirbúin. Því mælir frumvarpið fyrir um að forsætisráðherra skipi við gildistöku laganna sérstaka undirbúningsnefnd í þessu skyni.

Kostnaður

Fjármálaráðuneytið áætlar að kostnaður við stjórnlagaþingið verði um 360 milljónir króna. Þetta er gríðarleg lækkun frá fyrstu áætlunum, þar sem talið var að kostnaður yrði á bilinu 1 – 2 milljarðar króna.



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum