Hoppa yfir valmynd
16. júlí 2009 Forsætisráðuneytið

Yfirlýsing forsætisráðherra vegna samþykktar Alþingis um að gengið skuli til viðræðna við ESB

Alþingi hefur tekið ákvörðun um að Ísland sæki um aðild að Evrópusambandinu.

Þetta er söguleg ákvörðun og atkvæðagreiðslan í dag er líklega ein sú ánægjulegasta sem ég hef tekið þátt í vegna þess að ég er sannfærð um að hún hefur mikla þýðingu fyrir Ísland.

Við munum nú leggja inn formlega umsókn hjá formennskuríkinu í ráðherraráði ESB á næstu dögum og hefja skipulegan undirbúning að aðildarviðræðum.

Allt kapp verður lagt á að allir stjórnmálaflokkar og hagsmunaaðilar á Íslandi eigi hlutdeild í viðræðuferlinu og almenningur fái sem bestar upplýsingar um kosti og galla aðildar til þess að geta tekið afstöðu í þjóðaratkvæðagreiðslu um væntanlegan aðildarsamning.

Ísland og ríkin 27 í Evrópusambandinu, sem gengið verður til samninga við, deila sameiginlegri lýðræðis- og menningarhefð, og Ísland hefur um árabil verið virkur þátttakandi í Evrópusamstarfi í víðasta skilningi.

Sem norrænt velferðarríki og aðili að EES og Schengen er Ísland vel í stakk búið til þess að ræða skilyrði og forsendur fyrir fullri aðild að Evrópusambandinu við aðildarríkin og stofnanir ESB.



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum