Hoppa yfir valmynd
1. desember 2009 Forsætisráðuneytið

Styrkveitingar Þjóðhátíðarsjóðs vegna ársins 2010

Lokið er úthlutun styrkja úr Þjóðhátíðarsjóði 2009 vegna ársins 2010 og þar með þrítugustu og þriðju úthlutun úr sjóðnum.

Tilgangur sjóðsins er að veita styrki til stofnana og annarra aðila, er hafa það verkefni að vinna að varðveislu og vernd þeirra verðmæta lands og menningar, sem núverandi kynslóð hefur tekið í arf. Við það skal miðað, að styrkir úr sjóðnum verði viðbótarframlög til þeirra verkefna, sem styrkt eru, en verði ekki til þess að lækka önnur opinber framlög til þeirra eða draga úr stuðningi annarra við þau.

Í stjórn sjóðsins sitja nú:

  • Margrét Bóasdóttir, söngkona, formaður skipuð af forsætisráðherra.
  • Eiríkur Guðnason, fv. seðlabankastjóri, varaformaður, tilnefndur af Seðlabanka Íslands.
  • Jónína Michaelsdóttir, rithöfundur,
  • Margrét K. Sverrisdóttir, varaborgarfulltrúi
  • Björn Teitsson, magister, sem kjörin eru af Alþingi.
  • Ritari sjóðsstjórnar er Sigfús Gauti Þórðarson, lögfræðingur.

Alls bárust 259 umsóknir um styrki að fjárhæð samtals um 350 millj. kr. Úthlutað var að þessu sinni 65 styrkjum að fjárhæð samtals kr. 33,9 millj. kr. og hlutu eftirtaldir aðilar hæstu styrkina:

1. kr. 1.500.000 Málvísindastofnun Háskóla Íslands.
2. kr. 1.000.000 Víkin – Sjóminjasafnið í Reykjavík.
3. kr. 1.000.000  Ólafsdalsfélagið.
4. kr. 1.000.000 Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum.
5. kr. 1.000.000  Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum.
6. kr. 1.000.000 Ljósmyndasafn Reykjavíkur.
7. kr. 1.000.000   Félag áhugamanna um Bátasafn Breiðafjarðar.

Sérstök úthlutunarathöfn verður í Þjóðmenningarhúsinu við Hverfisgötu í Reykjavík af þessu tilefni, kl. 16.00 í dag.

Nánari upplýsingar um Þjóðhátíðarsjóð má m.a. sjá á vef Seðlabanka Íslands

Reykjavík 1. desember 2009

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum