Hoppa yfir valmynd
4. desember 2009 Forsætisráðuneytið

Aukin þjónustu við langveik börn

Aukin þjónusta við langveik börn
Aukin þjónusta við langveik börn

Skrifað var undir samning í dag milli ráðuneyta og sveitarfélaga um að á þessu ári verði áttatíu milljónir króna veittar af fjárlögum til sveitarfélaga til að auka þjónustu við langveik börn og börn með ofvirkni eða athyglisbrest. Ráðherrar félags- og tryggingarmála, mennta- og menningarmála og heilbrigðismála skrifuðu undir samninginn ásamt formanni Sambands íslenskra sveitarfélaga að viðstöddum forsætisráðherra og fulltrúum Umhyggju og ADHD samtakanna. Skrifað var undir hjá Sjónarhóli, ráðgjafarmiðstöð fyrir foreldra barna með sérþarfir á Íslandi.

Með samstarfssamningnum er lögð áhersla á að tryggja þjónustu í samræmi við þarfir barnanna og fjölskyldna þeirra, óháð því hver ber ábyrgð á þjónustunni. Ráðuneytin sem koma að samningnum leggja öll fé til verkefnisins í sameiginlegan sjóð sem sveitarfélögin sækja í til tiltekinna verkefna. Sveitarfélögin bera ábyrgð á einstökum verkefnum og taka að sér skipulagningu og framkvæmd þjónustunnar.

Á næstu dögum mun stjórn verkefnisins auglýsa eftir umsóknum sveitarfélaga um styrki til verkefna í samræmi við samkomulagið. Samstarfssamningurinn gildir til ársloka 2011 en framlög til verkefna árin 2010 og 2011 ráðast af fjárlögum.


Reykjavík 4. desember 2009

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum