Hoppa yfir valmynd
14. janúar 2010 Forsætisráðuneytið

Bréf forsætisráðherra til Dominique Strauss Kahn

Forsætisráðherra hefur í dag tilkynnt Dominique Strauss Kahn, framkvæmdastjóra Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, bréflega að af hálfu íslenskra stjórnvalda sé lögð áhersla á að efnahagsáætlun ríkisstjórnarinnar og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins haldi hindrunarlaust áfram, enda þótt fyrirsjáanlegt sé að lausn Icesave-málsins muni tefjast vegna fyrirhugaðrar þjóðaratkvæðagreiðslu.

Í bréfi forsætisráðherra kemur fram að endurskoðun efnahagsáætlunarinnar sé einn af mikilvægustu þáttum í endurreisn íslensks efnahagslífs. Því sé afar þýðingarmikið að endurskoðunin eigi sér stað svo fljótt sem kostur er, ekki síst til þess að tryggja fjárfestingar og uppbyggingu atvinnulífs í þeirri endurreisn sem hafin er á Íslandi.


Reykjavík 14. janúar 2010

 

Bréf forsætisráðherra til Dominique Strauss Kahn

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum