Hoppa yfir valmynd
26. apríl 2013 Forsætisráðuneytið

Nær 9 af hverjum 10 verkefnum ríkisstjórnarinnar lokið

Á ríkisstjórnarfundi 26. apríl 2013 var gerð grein fyrir árangri ríkisstjórnar Samfylkingarinnar og Vinstrihreyfingarinnar - Græns framboðs í 222 liðum sem hún einsetti sér að vinna að og ljúka á kjörtímabilinu 2009  -  2013.

Staða einstakra verkefna er tilgreind í þremur mismunandi litum á vefsvæði ríkisstjórnarinnar. Með grænum lit er gefið til kynna að verkefnið hafi verið afgreitt, með gulum lit að verkefni hafi verið lokið að hluta og með rauðum lit er gefið til kynna að verkefni sé ólokið.

Aðstoðarmenn ráðherranna hafa haldið utan um og skráð framvindu verkefnanna.

Við lok kjörtímabilsins hafði 204 verkefnum verið lokið af 222 (græn). Mál sem lokið var að hluta og teljast enn í vinnslu eru 16 talsins (gul). Aðeins 2 málum er ólokið (rauð).
Á vefsíðu ríkisstjórnar Samfylkingarinnar og Vinstrihreyfingarinnar - Græns framboðs  er gerð grein fyrir framagreindum  222 verkefnum sem hún einsetti sér að vinna að og ljúka á kjörtímabilinu 2009 – 2013.

Árangurinn er tilgreindur í 10 mismunandi köflum. Með því að smella á einstakan kafla er hægt að sjá stöðu verkefna í viðkomandi málaflokki.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum