Heimilisiðnaðarfélagið í heimsókn
Góðir gestir komu í heimsókn í forsætisráðuneytið í dag. Fulltrúar Heimilisiðnaðarfélagsins mættu prúðbúnir á fund forsætisráðherra og kynntu starf félagsins. Gestir báru faldbúninga, upphlut og peysuföt og yngsti gesturinn, Steinunn Ásta 7 ára, var klædd upphlut. Á fundinum var rætt um mikilvægi varðveislu handverks og þekkingar á textílarfi og búningasögu þjóðarinnar, og þann grundvöll sem starfið skapar á sviði menntunar og nýsköpunar.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra: „Það var skemmtilegt að fá þessa fulltrúa Heimilisiðnaðarfélagsins í heimsókn. Það var ánægjulegt að fá tækifæri til að kynnast áhrifum menningararfsins á hönnun samtímans og mikilvægi samþættingar menntunar og varðveislu og um leið þeirri nýsköpun sem getur sprottið úr arfleifð lands og þjóðar.“
Vefur Heimilisiðnaðarfélagsins er á heimilisidnadur.is.